Framhaldsáfangi

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Franska 1
Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu frönskumælandi landa. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð með hliðsjón af færnimarkmiðum áfangans. Í áfanganum eru gerðar auknar kröfur til sjálfstæðra vinnubragða nemandans.

Þekkingarviðmið

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
  • nokkrum helstu grunnatriðum fransks málkerfis og þeirri málfræði sem nauðsynleg eru til að ná hæfnimarkmiðum áfangans
  • menningu og siðum í frönskumælandi löndum
  • einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli.

Leikniviðmið

  • skilja einfaldar setningar, spurningar og upplýsingar sem tengjast daglegum athöfnum
  • skilja einfaldar leiðbeiningar og fyrirmæli þegar talað er hægt og skýrt
  • skilja þegar sagt er frá daglegu lífi, atburðum, tilfinningum og óskum
  • geta spurt og svarað einföldum spurningum um liðna atburði
  • geta aflað sér einfaldra og hagnýtra upplýsinga
  • skrifa einfaldan texta um málefni sem nemandinn þekkir
  • skrifa einföld persónuleg bréf
  • lýsa reynslu eða skoðun sinni og tjá tilfinningar sínar.

Hæfnisviðmið

  • fara eftir leiðbeiningum, skilaboðum og tilkynningum sem tengjast daglegum athöfnum
  • greina lykilatriði í stuttum rauntextum
  • geta tjáð sig á einfaldan hátt um tilfinningar og viðhorf
  • geta sagt einfalda sögu og lýst liðnum atburðum og reynslu í stuttu máli
  • takast á við tilteknar aðstæður í samskiptum og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
  • miðla á einfaldan hátt eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
  • nýta þekkingu og leikni til að leysa úr viðfangsefnum einn eða í samtarfi við aðra
  • meta eigið vinnuframlag og framfarir í áfanganum
  • þróa með sér aga, metnað, sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og trú á eigin getu í frönskunámi.
Nánari upplýsingar á námskrá.is