Þýska 2

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: ÞÝSK1AA05
Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Menningu, staðháttum og siðum þýskumælandi landa er fléttað inn í kennsluna og áhersla lögð á viðeigandi samskiptavenjur. Nemendur eru áfram þjálfaðir í færniþáttunum tali, hlustun og ritun ásamt lesskilningi. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Gerðar eru meiri kröfur um sjálfstæð vinnubrögð og árangursríka námstækni.

Þekkingarviðmið

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná hæfnimarkmiðum áfangans
  • grundvallarþáttum þýska málkerfisins
  • framburðarreglum og tónfalli
  • menningu og siðum í þýskumælandi löndum
  • samskiptavenjum og mismunandi notkun málsins eftir aðstæðum

Leikniviðmið

  • skilja einfaldar setningar, spurningar og upplýsingar sem tengjast daglegum athöfnum hans
  • skilja einfaldar leiðbeiningar og fyrirmæli
  • skilja stutta texta þar sem sagt er frá daglegu lífi, atburðum og tilfinningum eða óskað er eftir upplýsingum
  • greina lykilatriði í stuttum textum, blaða- og tímaritsgreinum
  • afla sér einfaldra, hagnýtra upplýsinga
  • lýsa reynslu eða skoðun sinni og tjá tilfinningar sínar
  • koma með uppástungur, afsaka sig og biðja leyfis
  • spyrja og svara einföldum spurningum um liðna atburði
  • skrifa einfaldan texta um efni sem hann þekkir
  • skrifa einföld persónuleg bréf, stuttar frásagnir og greina frá liðnum atburðum

Hæfnisviðmið

  • hlusta á og fara eftir leiðbeiningum, skilaboðum og tilkynningum sem tengjast daglegum athöfnum og bregðast rétt við
  • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
  • tileinka sér meginefni í textum um daglegt líf og atburði, ásamt textum um menningarleg málefni
  • takast á við tilteknar aðstæður í samskiptum og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
  • miðla á einfaldan hátt eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
  • skrifa um málefni og atburði byggða á persónulegri og ímyndaðri reynslu
  • skipuleggja nám í áfanganum og námsaðferðir við hæfi
  • meta eigið vinnuframlag og framfarir í þýskunáminu
  • sýna aga, metnað, sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og trú á eigin getu
Nánari upplýsingar á námskrá.is