byrjunaráfangi í efnafræði á náttúrufræðibraut

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: LÆSI2NÁ10
Áfanganum er ætlað að veita grunnþekkingu í efnafræði. Fjallað er um hugtakið efni og eðliseiginleika þess, mælingar og meðferð talna m.t.t. markverðra stafa, samsetningu atóma og læsi á lotukerfið og ólíkar gerðir efnatengja m.t.t. samsetningu þeirra og nafnakerfa. Farið er í helstu gerðir ólíkra efnahvarfa, læsi á efnajöfnur og tengsl þeirra við magnbundna útreikninga, hugtökin mól og styrkir efna í lausnum, auk gaslögmálanna. Mikil áhersla er lögð á dæmareikning þar sem ofangreindir efnisþættir eru fléttaðir saman. Nokkur áhersla er lögð á framkvæmd verklegra æfinga sem tengjast efninu.

Þekkingarviðmið

  • hugtökunum efni, efnablanda og ástand efna
  • eðlisfræðilegum eiginleikum efna
  • mælingum í efnafræði, meðferð talna og markverðum stöfum talna
  • hugtökunum orka, varmi og eðlismassi
  • hugtökunum atóm, frumefni, efnasamband, öreindir, samsætur og atómmassi
  • rafeindahýsingu frumefna, röðun rafeinda á undirhvolf, gildisrafeindum og áttureglu
  • hleðslu jóna og algengra fjölatóma jóna, jónískum tengjum og nafnakerfi jónaefna
  • myndun samgildra tengja
  • nafngiftarreglum einfaldra ólífrænna efna
  • sameindarformúlum, gerð Lewis mynda og lögun sameindaefna
  • rafneikvæðni og skautun sameinda
  • stillingu efnajafna og hagnýtingu þeirra í magnútreikningum
  • hugtökunum formúlumassi, mól og mólmassi
  • tölu Avogadrosar og tengslum hennar við hugtakið mól
  • tengslum atómmassaeiningar og móls
  • fellingarhvörfum og leysni jónaefna í vatnslausnum
  • sýru-basa hlutleysnihvörfum og skilgreiningu á sýrum og bösum
  • oxun-afoxunarhvörfum, oxunartölum og reglum sem að þeim lúta
  • ástandi efna og fasabreytingum
  • lausnum og hugtökum tengdum þeim s.s. leysir, leyst efni og felling
  • reglunni „líkur leysir líkan“
  • sterkum og veikum rafkleyfum
  • sýrum, bösum, pH og tengdum hugtökum

Leikniviðmið

  • greina milli og skilgreina ólík efnafræðihugtök
  • beita mælistærðum, einingum og markverðum tölustöfum
  • umreikna milli móla og annarra magnbundinna eininga
  • beita hlutfallsreikningum efna í lausnum og efnahvörfum
  • rita nettó jónajöfnum
  • reikna dæmi tengd ofangreindum hugtökum í efnafræði
  • gera sér góða grein fyrir hugtakanotkun í efnafræði
  • rita skýrslur um framkvæmd verklegra æfinga

Hæfnisviðmið

  • átta sig á og rökstyðja hvaða reikniaðferðir eiga við hverju sinni við útreikninga í efnafræði
  • beita skipulegum aðferðum við útreikning lausna og setja fram niðurstöður sínar með óvissu og markverðum hætti
  • geta hagnýtt sér efnafræðilega þekkingu við framkvæmd verklegra æfinga í efnafræði
  • skilja mikilvægi efnafræði í raunvísindum og geti unnið af öryggi og sjálfstæði og beitt röksemdarfærslu á efni tengd grunnefnafræði
  • stunda áframhaldandi nám í efnafræði
Nánari upplýsingar á námskrá.is