Rytmísk tónfræði, hljómfræði og tónheyrn

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Áfanginn miðar að því að nemendur læri að greina og meðhöndla hljóma, ritaða og eftir heyrn, og að þeir þjálfist í meðhöndlun þeirra og virkni. Áhersla er lögð á hlustun og greiningu í tónheyrn er tekur mið af rytmískir hljómfræði, ásamt sértækri nálgun á hljómfræðilega þætti námsins. Áfram verður unnið með undirstöðuatriði rytmískrar tónfræði, hljómfræði og tónheyrn og unnið með ýmiskonar tóndæmi frá mismunandi tónlistarmönnum og tímabilum. Nemendur skulu hafa orðaforða og skilning til að geta tjáð sig um námsefnið í ræðu og riti. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og tileinki sér árangursríka námstækni þar sem þeir nýta þau hjálpargögn sem aðgengileg eru með forritum, á vef eða í bókum.

Þekkingarviðmið

  • helstu rytmísku tónstigum og hljómum
  • orðaforða í tengslum við efni áfangans
  • tengslum hljómfræðinnar við hljóðfæraleik/söng og tónsmíðar
  • mismunandi notkun rytmískra hljóma eftir tónlistarmönnum og tímabilum

Leikniviðmið

  • nota rytmíska tónstiga og hljóma í samleik og spuna eftir því sem við á
  • tjá sig með skýrum hætti í ræðu og riti um viðfangsefni áfangans
  • beita viðeigandi hjálpargögnum við hljóðfæraleik/söng og tónsköpun

Hæfnisviðmið

  • hljómgreina algeng lög og verkefni
  • nýta sér margvíslega rytmíska hljóma og tónstiga á mimunandi hátt
  • greina samhengi tónstiga og hljóma
  • útfæra undirspil og spuna á hljóðfæri sitt
  • semja eigin tónsmíðar og sóló
Nánari upplýsingar á námskrá.is