Frumulíffræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LÆSI2NÁ10 og LÍFF1GL05
Í áfanganum er fjallað um grundvallaratriði í gerð og starfsemi frumna. Í fyrsta lagi er fjallað um gerð ósérhæfðra frumna, helstu frumulíffæri og hlutverk þeirra. Í öðru lagi er fjallað um helstu flokka lífrænna efnasambanda og efnaskipti frumunnar. Í þriðja lagi er fjallað um sérhæfingu frumna, helstu vefjagerðir og starfsemi sérhæfðra frumna með sérstakri áherslu á taugafrumur. Í fjórða lagi er fjallað um líffræðileg stýrikerfi á sameindastigi og í samhengi við tauga- og innkirtlakerfi. Veruleg áhersla er lögð á sameindalíffræði frumna og að sýna fram á samhengi milli afbrigðilegrar frumustarfsemi og sjúkdóma.

Þekkingarviðmið

  • hugtakinu samvægi
  • helstu frumugerðum vefja
  • efnafræði frumna – þekkja eiginleika vatns og helstu gerðir lífrænna efna
  • muninum á heilkjarna- og dreifkjarnafrumum
  • öllum helstu frumulíffærum og frumuhlutum
  • próteinframleiðslu, hvar og hvernig hún fer fram ásamt virkni ensíma
  • helstu eiginleikum glýkólýsu, krebshrings og öndunarkeðju
  • helstu flutningsleiðum um frumuhimnu
  • muninum á hormónum og taugaboðefnum
  • gerð taugafrumna og taugamóta

Leikniviðmið

  • skilja hvað felst í samvægi og hvernig stjórn líkamans felst í því
  • skilja breytta eiginleika frumna eftir gerðum
  • tengja saman efnafræði frumna og virkni, eiginleika og andsvar frumna
  • greina á milli heil- og dreifkjarnafrumu
  • þekkja öll helstu frumulíffæri og frumuhluta
  • skilja samhengi á milli byggingu prótína og ensímvirkni
  • skilja á milli helstu efnaskiptaferla frumunnar
  • greina á milli mismunandi flutningsleiða um frumuhimnur
  • greina á milli mismunandi boðefna og boðleiða
  • skilja taugamót og virkni taugaboðefna og viðtaka þeirra

Hæfnisviðmið

  • útskýra undirstöðuatriði er varða mismunandi frumugerðir og hlutverk þeirra
  • gera grein fyrir þeim efnaskiptaferlum sem eiga sér stað inni í frumum
  • þekkja til umhverfi frumna og samskipti frumna við umhverfi sitt
  • þekkja mismunandi gerðir taugafrumna og virkni taugunga og taugamóta
  • útskýra samhengi á milli afbrigðilegrar frumustarfsemi og sjúkdóma
  • nýta þekkingu sína og leikni til til áframhaldandi náms
Nánari upplýsingar á námskrá.is