Í þessum áfanga er mikil verkleg kennsla þar sem áhersla er lögð á fjölbreyttar aðferðir á bakvið efnagreiningar. Fræðilegi hluti námskeiðsins snýst um efnagreiningar og efnagreiningartækni og þá möguleika sem eru til á nútíma rannsóknarstofu. Farið verður yfir nýjustu tækni sem völ er á þótt ekki sé kafað djúpt í fræðilega hlutann á bakvið tæknina.

Framkvæmdar eru m.a. almenn jónagreining á vatnslausnum og ákvörðun óþekktra jóna í lausnunum auk þess sem nemendur fá raunverulegt sýni til greiningar. Að auki verður m.a. gerð magngreining á kalsíum í mjólk. Engin skýrslugerð er í áfanganum en þess í stað er skilað niðurstöðum með útfyllingu á eyðublaði sem nemendur fá frá kennara fyrir hverja tilraun.

Fyrir: Heilbrigðisbraut, náttúrufræðibraut og raungreina- og tæknibraut

Forkröfur: EFNA2AB05

Námsefni: Námsefni frá kennara 

Námsmat: Áfanginn er símatsáfangi þar sem m.a. er verklegt próf. Áfanginn er án lokaprófs

Annað: Áfanginn telst til sérgreina heilbrigðisbrautar, náttúrufræðibrautar og raungreina- og tæknibrautar