- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Í tilefni að degi íslenskrar tungu 2012 festu nemendur gula miða á glugga Bókasafns MA með hugleiðingum eða tilvitnunum. Alls komu upp á fimmta hundrað miða, að vísu allmargir með erlendum áletrunum og voru teknir í burtu. Margt kom upp keimlíkt, iðulega tilbrigði við kunnugleg stef, stundum vísanir í gamlan kveðskap en líka í splunkunýjan. Margt er hér líka af góðum smekk og hugkvæmni fest á blað og í þessu gætu leynst nýir málshættir og spakmæli.
Hér hefur efninu af gulu miðunum verið raðað upp eftir upphafsorðum í stafrófsröð. Þetta er langur listi, en örugglega finna allir eitthvað við sitt hæfi:
Að feta lífsins braut.
Að hika er sama og tapa.
Að hryggjast og gleðjast,
hér um fáa daga,
að heilsast og kveðjast,
það er lífsins saga.
Að lifa lífinu lifandi er erfitt ef maður hatar sjálfan sig.
Að sýna hinum æðri virðingu er skylda. Að sýna jafningjum virðingu er kurteisi. Að sýna hinum óæðri virðingu er göfugt.
Að vera blindur er eins og að sjá með vísifingri.
Af hverju að heita Steinn þegar þú getur heitið Aðalsteinn?
Af hverju er hafið blátt?
Af hverju?
Af sárri reynslu vitið vex.
Aldrei er ég súr þó ég sé á túr.
Aldrei er of seint að gera gott.
Aldrei glíma við svín, þið verðið skítug en svínið mun njóta þess.
Aldrei skemma góða sögu með sannleikanum.
Aldur er bara tala.
Allir brosa á sama tungumáli.
Allir eru brosandi, enginn hlær.
Allir eru góðir í einhverju, enginn er góður í öllu.
Allt bíður síns tíma.
Allt er hægt með sápu og heitu vatni.
Allt er vænt sem vel er grænt.
Allt fer eftir því við hvað er miðað.
Allt fer í steik ef þú ert ekki með mér, hleypur í kekki og kút.
Allt sem þú ert fær í færir þér hamingju.
Allt yfir 5 er ólaunuð yfirvinna.
Alvöru vinátta er eins og þegar þú pissar á þig. Allir sjá það en þú einn finnur hlýjuna.
Astraltertugubb.
Auðveldara er að sjá flís í auga náungans en bjálka í sínu eigin.
Auga fyrir auga - og allir enda blindir.
Augun eru speglar sálarinnar.
Aukaverkanir próftaflna: kvíði, stress, ógleði og minnisleysi.
Aukaæfingin skapar meistarann.
Á hverjum morgni ég hugsa til þín,
þú varst heit og ilmandi,
er þú lagðist við hliðina á mér,
kitlaðir og kitlaðir mig svo mig svimaði.
Áfram Ísland.
Án ósigra eru engir sigrar.
Ástin er mér lífið, þú færð engu breytt.
Bagg er bögg.
Besti fornmunurinn er gamall vinur.
Betra er að dansa í kjól er á stól.
Betra er áfengi en áfangi.
Betra er langlífi en harðlífi.
Betri er einn fugl í sósu en tveir í frysti.
Betri er uppgangur en niðurgangur.
Blessaður, sagði Bangsímon og bauð mér kaffi. Það er aldrei y á eftir v-i.
Blindur sjónlaus maður.
Brandari dasins: Heyri í þér á morgun.
Brennt barn í tómri tunnu.
Bros kostar minna en rafmagn en ber meiri birtu.
Brostu framan í heiminn þá brosir heimurinn til þín.
Brostu framan í heiminn, þá brosir heimurinn framan í þig.
Brostu framan í lífið og lífið mun brosa framan í þig.
Brostu meira, það gerir daginn skemmtilegri.
Brostu til heimsins og heimurinn brosir við þér.
Brostu út í heiminn og hann brosir til baka
Brostu!
Búum til börn.
Djammaðu lífinu til hins dýpsta.
Djöfull er ég flottur!
Dreptu með góðvild.
Druslu hús mús.
Dýrmætasta gjöfin sem þú gefur er gjöfin sem varla sést.
Ef allir gengju í sömu átt myndu engir mætast (Elías Mar).
Ef ég væri Jesú væri alltaf kynlíf á kvöldin.
Ef ég væri ljóð væri ég stutt og skrítið.
Ef ég væri sammála þér hefðum við bæði rangt fyrir okkur.
Ef kossar væru snjókorn myndi ég senda þér snjóstorm.
Ef sumarið og veturinn væru saman í liði þá væri lífið innantómt.
Ef það er hollt þá þarf það ekki að vera gott.
Ef þú dettur, fáðu þár smáköku.
Ef þú ert að lesa þetta hefurðu augljóslega ekkert að gera.
Ef þú gengur þröngsýnn niður gang lífsins gengurðu framhjá dyrum möguleikanna.
Ef þú getur ekki útskýrt eitthvað fyrir sex ára barni skilur þú það ekki sjálfur.
Ef þú lyftir eins og rjómi verður þú eins og rjómi.
Ef þú vilt að draumar þínir rætist verðurðu að vakna.
Ef þú vilt frið, undirbúðu þig fyrir stríð.
Eftir flóði kemur fjara.
Eftirlætis minningarnar mínar geymi ég í tánum.
Eigi fellur tré við fyrsta högg.
Einn hringur ræður þeim öllum,
en skal hina finna.
Einn skal safna þeim öllum
og um sinn fjötur spinna.
Eitt bros á dag kemur skapinu í lag.
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt.
Eitt upphrópunarmerki jafngildir þúsund upphrópunarmerkjum.
Ekkert annað skiptir máli.
Ekkert er vinna nema þú viljir frekar vera að gera eitthvað annað.
Ekkert.
Ekki feta í fótspor annarra. Búðu til þín eigin.
Ekki fretar mús eins og hestur þó að rauf rifni.
Ekki láta drauma þína vera bara drauma
Ekki skaltu brosið spara
og hafðu jafnvel tvö til vara,
því brosið bjarta sem þú hefur
er besta gjöfin sem þú gefur.
Ekki taka lífinu of alvarlega. Þú lifir það hvort sem er ekki af.
Elskaðu lífið sem þú lifir, lifðu lífinu sem þú elskar.
Elskaðu líkama þinn, annars virðir hann enginn.
Elskaðu mig mest þegar ég á það skilið því þá þarf ég mest á ást þinni að halda.
Elskaðu náungann.
Engan asa. Settu niður, það eru að byrja fréttir.
Enginn sársauki - enginn hagnaður.
Erfiðustu spurningarnar gefa oft af sé einföldustu svörin.
Ertu stundum hugsandi yfir öllum gulu miðunum?
Ég - þú - út núna - stjörnuljós og læti.
Ég dansa það af mér.
Ég diffra til að gleyma.
Ég elska að skera kind á háls og láta renna í bað. Rautt og heitt og þykkt bað.
Ég elska þig líkt og penninn elskar blaðið.
Ég er afi minn.
Ég er eins og ég er.
Ég er eins og ég er. Sættu þig við það.
Ég er eins og sæðisbanki, fullur af sæði.
Ég er ekki alki en ég fæ mér oft.
Ég er ekki kökumaður.
Ég er engill með skítuga vængi.
Ég er furðuverk.
Ég er hnefi réttlætisins og ég er ósmurður.
Ég er leðurblökumaðurinn.
Ég er ljós lífsins, sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri heldur öðlast ljós lífsins.
Ég er með fimm háskólagráður.
Ég er tilfinningaleg skjaldbaka að elta héra.
Ég geri það sem ég vil, ég geri fokking það sem ég vil.
Ég geri það sem ég vil.
Ég get pissað þegar ég er dauð.
Ég get staðist allt nema freistingar.
Ég hata mánudaga.
Ég hef aldrei skilið tilganginn með að skilja tilganginn.
Ég heiti Salómon Elías, kallaður Salmonelli.
Ég held að það séu bara allir með bullandi ADHD hérna.
Ég kann að lesa.
Ég kaupi epli með jöfnunni cos(u+v)=cos(u)cos(v)-sin(u)sin(v)
Ég labba, þú stýrir.
Ég las bók - Jósef Fritzl - Fólkið í kjallaranum. Hún er ekki góð.
Ég og þú fæddumst til að deyja.
Ég safna engum minningum. Ég kastaði reglunum.
Ég setti þennan miða hér til að fjölga miðunum á Bókasafninu.
Ég skrifaði þennan miða til að fela það sem er undir honum.
Ég syng til að gleyma og muna í senn
syng um ástina sem hvarf en ég man hana enn
ég er nú svo einmana, ég finn hvernig ég brenn,
en það verður allt í lagi.
Ég veit það eitt - ég veit ekki neitt.
Ég þarf á klósettið (Albert Einstein).
Ég þarf ekki áfengi, ég er fullur af ást.
Farðu hratt, sjáðu fátt - farðu hægt, sjáðu margt.
Fjarlægðin gerir fjöllin blá og langt til Húsavíkur.
Flestir menn þrá meiri kærleik en þeir eiga rétt á.
Forna dáð er fremd að rækja, fagrir draumar rætast enn.
Frelsi, jafnrétti, bræðralag.
Fyrsti apríl. Marsbúinn.
Færðu mér fótleggi mína.
Förum út. Ég þarf að æla.
Gefðu tímanum lausan táuminn og þú munt tapa honum.
Georg og félagar, vinsælir alls staðar, viltu ekki vera með?
Get! Ætla! Skal!
Geta fíll og svín eignast afkvæmi saman?
Geymt fé er glatað fé.
Gleðileg jól.
Gríslingur: Hvernig stafar maður ást? Bangsímon: Þú stafar hana ekki, þú finnur hana.
Guð er ekki dauður. Hann lifir í mér.
Guð kastar ekki teningum.
Ha! Hvað meinar þú?
Hafðu gaman af sjálfri þér, annars gerir það enginn.
Hamingja er tilvera án mikillar vtneskju.
Hamingjan er val.
Háa skilur hnetti,
himingeimur,
blað skilur bakka og egg,
en anda sem unnast,
fær aldregi
eilífð að skilið.
Hehe.
Heiðrið þá sem heiður eiga skilinn.
Heilinn vex og vex, hjartað slær og slær.
Heima er best en ímyndunaraflið er betra.
Hey þú, megabeib. Komdu kisulóra, vertu hjá mér í nótt.
Hér eru skjátur út um allar trissur.
Hlátur er eins og svefn - nauðsynlegur til að lifa.
Hláturinn lengir lífið - nema þú deyir úr hlátri.
Hláturinn lengir lífið.
Hljóða nótt er allt sem áður var,
átti fley en man ei lengur hvar,
flúin, farin, hvað er sagt og séð,
satt er vont ef lygi fylgir með.
Hundurinn geltir en kötturinn mjálmar. Hvor hefur rétt fyrir sér?
Húsið er að gráta alveg eins og ég.
Hvað er blátt og lyktar eins og rauð málning? Blá málning.
Hvað er sjálfið? Hver ert þú?
Hvað ertu að bóna?
Hvað getur maður sagt þegar manni dettur ekkert í hug?
Hvað sem gerist, því ræður hending ein.
Ástarsorgir og önnur hjartans mein
Endalaust.
Hvað viltu að ég geri? Fari í kjól og dansi húlla-húlla?
Hvar er lykillinn?
Hvenær dóu ævintýrin?
Hver er sinnar gæfu smiður.
Hver ert þú að segja mér að ég sé þú og þú sért ég?
Hversu mikið þolir mannshjartað?
Hærra, hærra heimsins prjál, mér þykir verða fátæklegra og smærra.
Hæst bylur í tómri tunnu.
Inn í mér syngur vitleysingur.
Í dag er miðvikudagsdjemm.
Í gær var fortíð, í dag er nútið og á mrgun er framtíð. Njóttu hvers dags fyrir sig.
Íslensk tunga er gott mál
Íslensk tunga, mér þykir leitt að heyra hvernig er komið fyrir þgf-inu þínu.
Íslenska náttúran og íslenska málið eiga eitt sameiginlegt, þau eru bæði stórkostleg.
Íslenskt landslag: Að hálfu leyti himinninn, hinn helmingurinn er minningin.
Kann frekar vel við þig... en samt ekki.
Kenna má mörgum ýmislegt án þess að beita hörku.
Kisa, kisa! Hvar sefur kisa? Í MA!
Kisi er ekki nema hann sé einn.
Klassískur Heiðar #Heiðar.
Komdu um jólin.
Komið út á mitt gólf! En þetta er ekki þitt gólf!
Kóngurinn er sá sem getur.
Kæri Guð! Nei kallaðu mig bara Valdimar.
Leiðin til að verða ríkur - þéna meira, langa í minna.
Lifðu daginn eins og hann sé þinn síðasti. Þú veist ekki hvað bíður þín á morgun.
Lifðu lífinu eins og þetta sé síðasti dagur lífs þíns.
Lifðu lífinu lifandi.
Lifðu lífinu meðan þú getur það.
Lifðu núna
Lifðu vel. Þú lifir aðeins einu sinni.
List hamingjunnar er fólgin í að gleðjast yfir hinu smáa.
Litlir hlutir eru minni útgáfa af sórum hlutum.
Lífið er dýrmæt gjöf. Farðu vel með það.
Lífið er Einar Sigtryggs.
Lífið er eins og hornaföll, þú getur aldrei munað allar reglurnar.
Lífið er eins og strigi. Gerðu listaverk úr þínu.
Lífið er eins og trélitir engir tveir litir eins og hver litur setur sinn lit á lífið
Lífið er ekki alltaf dans á rósum.
Lífið er ekki bara súkkulaði og bíltúrar.
Lífið er kapphlaup. Hvar ert þú?
Lífið er leikur, taktu þátt og hafðu gaman.
Lífið er of stutt fyrir eftirsjá og söknuð.
Lifðu hvern dag eins og hann sé sá síðasti.
Lífið er of stutt fyrir væl og skæl. Hættu því að væla.
Lífið er saltfiskur...
Lífið er yndislegt.
Líttu á björtu hliðarnar, dimmasta myrkrið er áður en sólin kemur upp.
Ljóðskáld taka veðrinu alltaf svo persónulega.
Læknir, nú er ekki tími fyrir óttann. Hann kemur á eftir.
Maður fær ekki það besta ef maður kaupir það ódýrasta.
Maður skýtur ekki fugla með fallbyssu.
Man Utd. fær vítaspyrnu á stórhættulegum stað.
Margur sefur yfir sig sem vaknar ekki á réttum tíma.
Matur!
Málfræði skiptir ekki máli.
Með miklum mætti kemur mikið ábyrgð.
Með nóg af sápu getur þú sprengt um það bil hvað sem er.
Menn komast yfir næstum því allt ef þeir flýta sér ekki.
Menntun viljans er markmið okkar tilveru.
Mér er um og ó, ég á sjö börn í sjó og sjö börn á landi.
Mér finnst rigningin góð.
Mér leiðast hænur.
Mikilvægustu hlutirnir í lífinu eru ekki hlutir.
Mjá.
Mjúkur klósettpappír er eins og hlýtt klapp á bossann.
Mundu að óttinn er aðeins til í huganum.
Mættu í tíma.
Nauðgunarlestin hefur engar bremsur.
Nei, þetta er vitlaust hjá þér.
NenniS
Njóttu lífsins meðan þú getur.
Nokkur ofankoma um Vestfirðina norðaustanverða. Kafaldsmyglingur um allt land.
Nýr dagur markar nýtt upphaf.
Oft er dýrð í dauðaþögn.
Oft er grafinn maður dáinn.
Ofurmaðurinn þarf ekki sætisólar.
Orð eru ofmetin.
Óperan er aldrei búin fyrr en feita konan syngur.
Óvinur óvinar þíns er vinur þinn.
Partý í Dúfnahólum 10.
Prumpa í stampinn.
Plægður akur sem nægan ávöxt ber, svona sé ég lífið fyrir mér.
Ríki standa við hagsmuni heimsbyggðarinnar þangað til annað er hagstæðara.
Ríkissjónvarpið er líffstíll.
Ræktin eða dauði.
S-in þrjú - svartur, sver, sterklegur.
Sá á fund sem finnur nema eigandinn finnist.
Sál menntskælings deyr í hverri próftíð.
Sárt bítur soltin lús.
Sértu góður í einhverju skaltu aldrei gera það frítt.
Sigraður er bara einu striki frá sígraður.
Sjaldan eiga fiskar fótum sínum fjör að launa.
Sjaldan fellur eplið þá tveir deila.
Skagfirðingar eru fyrir hopp og hí.
Skál og syngja Skagfirðingar.
Skítur skeður.
Skrímsli verða aldrei til því þótt þau finnist munu þau bara vera skráð sem ný dýrategund.
Skynsemi er ofmetin.
Snúðu andlitinu mót sólu og þú séð ekki skuggana.
Spáðu í mig þá mun ég spá í þig.
Stundum spyr ég sjálfa mig: Er þess virði að sitja og læra átta tíma á dag bara til að gerast leikari. En svo man ég hvað er erfitt að gerast strippari á Íslandi.
Stundum þarf maður bara feita mörgæs til að brjóta ísinn.
Stundum þegar ég er einn heima fer ég niður í kjallara og ímynda mér að ég sé kartafla.
Sunnudagur til sælu. Mánudagur til mæðu.
Svefn -g- englar.
Svefn er ofmetinn.
Sveimhugi í þankahríð.
Sveitin mín sæla
með snæþakin fjöll
mildar mitt skap,
mýkir sem mjöll.
Svona er bara lífið, krakkar, sættið ykkur við það.
Syngdu í sturtu.
Sönn auðævi felast í því að eiga sér fleiri drauma en raunveruleikinn getur eyðilagt.
Sönn vinátta er eins og góð heilsa, maður áttar sig ekki á gildi hennar fyrr en maður hefur misst hana.
Taktu á rás, því það er verra að hafa ekki reynt en að detta á leiðinni.
Til að verða kjöt þarftu að borða kjöt.
Treystið þeim sem leita að sannleikanum en ekki þeim sem segjast hafa fundið hann.
Trúðu á tvennt í heimi, tign sem æðsta ber: Guð í alheimsgeimi, Guð í sjálfum þér.
Tvennutilboð: Engin uppgjöf - hámarksárangur,
Undir brúnni.
Unnið verk verður ekki aftur tekið.
Upp er niður og niður er upp.
Upphrópunarmerki.
Út fyrir endimörk alheimsins.
Vandræðaleg manneskja fyrir aftan þennan miða.
Veit einhver svo sem hver er lífsins tilgangur?
Veldu gæði - veldu Kjarnafæði.
Vertu þú sjálfur, elskaðu og lifðu lífinu til fulls.
Vertu þú sjálfur.
Vertu ætíð í skotheldu vesti, annars gætirðu orðið fyrir skoti. Vestið getur verið uppi í kollinum því skot í hjartað er oft verra.
Við borðum ekki til að lifa, við lifum til að borða.
Við dönsum, kyssum, kelum og allir komast heilir heim.
Við sjáum hlutina ekki eins og þeir eru heldur eins og við erum.
Við tölum illa um fólk sem talar illa um fólk því að tala illa um fólk er rangt.
Við vitum hver þú ert.
Vinir eru englar án vængja.
Vinir eru fjölskyldan sem þú velur.
Vopn mitt er penninn bleki drifinn.
Þ.l.a.e.s. Þú lifir aðeins einu sinni.
Það besta sem guð hefur skapað er nýr dagur
Það er bannað að vera vondur, vondur við kvenfólk.
Það er bara svona sem ég rúlla.
Það er engin leið að hætta.
Það er erfiðara að skilja þig en þýskar málfræðireglur.
Það er erfitt þegar illa gengur, þú munt alltaf þurfa að þrauka aðeins lengur.
Það er skemmtilegt að vera á málabraut. Maður lærir ný tungumál.
Það koma dagar eftir þennan dag en enginn þeirra verður eins.
Það skín á mig í gegnum trjágreinarnar - lít upp og lifna við - laufblöðin breyta um lit.
Þau lifðu hamingjusöm til æviloka.
Þð illa lætur þig betur meta það góða.
Þegar draumurinn er orðinn að veruleika og veruleikinn orðinn að draumi, hvar ertu? Í draumnum eða veruleikanum?
Þegar ég lít í spegil á morgnana sé ég tvær glitrandi stjörnur.
Þegar ég verð stór verð ég ekki lítill lengur.
Þegar kóngurinn er með kross í hendi
koma hersveitir til að ná í skammtinn.
Svalir nátthrafnar sjá að nú er færi,
sjúkleg árátta fær þá til að virka.
Þegar þú ert sorgmæddur horfðu aftur í hjarta þitt og þú sérð að þú grætur vegna þess sem gleði þín var.
Þeir sem leggja sig mest fram við að ná síðasta kökubitanum eru þeir sem eiga það skilið.
Þeir þurfa ekki að kvarta sem kunna öll sín sólarljóð.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Þetta er dropinn sem lét vasann flæða.
Þetta er ekki rör. Þetta er fallbyssa.
Þetta er minnisverður dagur því hann kemur aldrei aftur.
Þetta er svo djúpt að ég botna ekkert í því.
Þinn líkami er fagur sem laufguð björk, en sálin er ægileg eyðimörk (DS).
Þó svo að þú vitir margt þá þýðir það ekki að þú sért vitur.
Þræll einn þegar hefnir en argur aldrei.
Þurrar hendur gefa blautt hjarta.
Þú ert það sem þú borðar: Ég er hamborgari.
Þú getur sigrast á næstum hvaða ótta sem er ef þú aðeins ákveður að gera það.
Þú munt að lokum hitta manninn í lífi þínu. Mættu honum með trausti.
Þú sérð músagildru. Ég sé frían ost og fokking áskorun.
Æfingin skapar meistarann.
Öl er innri maður.
Menntaskólinn á Akureyri
Eyrarlandsvegi 28
600 Akureyri
Kt. 460269-5129
Skrifstofutími
Mán - fim 08:00 - 16:00
Föstud 08:00 - 14:00
Lokað í hádeginu 12:00 - 13:00
Lokað um helgar
Ritstjórn: Brynjar K. Óttarsson, Eyrún Huld Haraldsdóttir og Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir