Haustönn 2025 var tekið upp nýtt fyrirkomulag í stundaskrá nemenda, þar sem námstíma nemenda er skipt í faggreinatíma og vinnustundir. Faggreinatímar eru kennslustundir í einstökum áföngum með bekk/hópi. Vinnustundir eru vinnutímar þar sem nemandi hefur meira sjálfræði um að hverju hann vinnur og þarf ekki að fylgja eigin bekk. Nemendur skrá sig í vinnustundir á vefsíðunni NÁMA. Vinnustundir geta verið með ýmsum hætti, fagvinnustundir þar sem kennarar í viðkomandi námsgrein eru til aðstoðar, hópvinnustundir, almennar vinnustundir þar sem nemendur geta unnið að hverju sem er og hljóðar vinnustundir. Auk þess geta nemendur skráð sig á bókasafnið en það eru takmörk á hversu oft það getur verið. Tilgangurinn með þessari skiptingu námstímans er að auka sveigjanleika, auka ábyrgð nemenda á eigin námi og bæta árangur.
Umsjónarkennarar færa mætingu í vinnustunum yfir í INNU nemenda í lok vikunnar.
Hér eru leiðarljós kennara í vinnustundum
Hér eru leiðarljós nemenda í vinnustundum
Í hverjum 5 eininga áfanga eru tvær 80 mínútna kennslustundir, sem eru í einni blokk, og ein 50 mínútna vinnustund. Hér er mynd af blokkakerfinu:
