Nemendum í Menntaskólanum á Akureyri ber að sækja allar kennslustundir og vinnustundir, mæta stundvíslega og vera undirbúnir og virkir í tímum. Nemendum ber sjálfum að fylgjast með skólasókn sinni í Innu. Nemendur sem eru fjarverandi úr tíma bera ábyrgð á að fylgjast með hvað fram fer í námi á þeim tíma óháð ástæðu forfalla.

Skráning mætingar

  • Kennari merkir við í Innu í upphafi kennslustundar. Komi nemandi eftir að nafnakalli er lokið, telst hann koma of seint og fær hálft fjarvistastig.
  • Nemandi telst fjarverandi ef hann kemur meira en 15 mínútum eftir upphaf kennslustundar.
  • Ef nemandi yfirgefur kennslustundina án leyfis kennara fær hann fjarvist.
  • Kennara er heimilt að gefa nemenda fjarvist að gefnu tilefni, t.d. fyrir að spilla vinnufriði eða fyrir aðra óæskilega hegðun og þátttökuleysi.

Mæting nemenda er skráð í Innu og er aðgengileg nemendum og forráðamönnum ólögráða barna.

Mæting í vinnustundir er skráð í Námu og færð yfir í Innu í lok hverrar viku.

Svigrúm vegna fjarvista

Svigrúm vegna fjarvista miðast við 80% mætingu á önninni eða sem samsvarar þremur vikum í hverjum fimm eininga áfanga. Ef nemandi er fjarverandi meira en 20% í áfanga jafngildir það úrsögn úr áfanganum. Innan þessa svigrúms falla veikindi, læknisheimsóknir og aðrar tilfallandi fjarvistir.

Veikindi teljast sem fjarvistir en undir ákveðnum kringumstæðum er hægt að taka tillit til þeirra. Nemendur bera ábyrgð á að koma skýringum á fjarvistum til skólans. Þær þarf að tilkynna samdægurs í gegnum Innu. Forráðafólk tilkynnir forföll nemenda undir sjálfræðisaldri  í gegnum Innu.

Fjarvera er á ábyrgð nemenda og forráðafólks og ekki er hægt að ætlast til hliðrunar á námsmati eða verkefnaskilum vegna hennar.

Undanþágur

Keppnisfólk, t.d. í íþróttum, tónlist o.fl., getur sótt um leyfi frá skólasókn. Leyfi vegna keppnisferða eða ferða á vegum íþróttafélags er veitt ef staðfesting frá þjálfara/sérsambandi liggur fyrir.

Nemendur, sem eiga við langvinn veikindi að stríða eða búa við aðstæður sem geta haft áhrif á skólasókn þeirra, skulu hafa samband við náms- og starfsráðgjafa eða aðstoðarskólameistara. Hægt er að gera undanþágur frá lágmarksmætingu svo fremi sem nemandi sinni námi eftir getu. Skólinn getur farið fram á að vottorði sé skilað.

Hægt er að sækja um leyfi til skólameistara eða aðstoðarskólameistara vegna undirbúnings viðburða á vegum skólafélagsins Hugins.

Veikindi í prófum

Afar mikilvægt er að tilkynna veikindi áður en próf hefjast. Ef um próf í próftíð í lok annar er að ræða þarf að skrá veikindi í INNU áður en próf hefst. Sérstök sjúkrapróf verða þá auglýst. Einnig þarf að tilkynna veikindi ef eru próf/verkefni á önninni og nemandi þarf að hafa samband við kennara eins fljótt og auðið er varðandi möguleika á sjúkraprófi/verkefni. Skólinn getur óskað eftir því að nemendur skili inn vottorði vegna veikinda í prófum.

Eining fyrir skólasókn

Nemendur fá einingu fyrir skólasókn ef raunmæting er að lágmarki 95% yfir önnina og þá er skólasókn birt á stúdentsskírteini nemenda.

Símat og vinnueinkunn

Að jafnaði gilda sömu reglur um skólasókn í símatsáföngum og öðrum áföngum, en kennurum er heimilt að setja strangari skólasóknarreglur í námsáætlun enda skiptir þátttaka og viðvera nemenda miklu í slíkum áföngum.

Íþróttir

Sérstakar reglur gilda um vægi skólasóknar í einkunn fyrir íþróttir.

Meðferð og úrlausn mála, viðurlög

Yfirlit um ástundun eru send reglulega til nemanda í tölvupósti. Forráðafólk nemenda yngri en 18 ára fær afrit af tölvupóstum. Yfirlitið gildir sem áminning til nemenda ef viðvera í einstökum áföngum uppfyllir ekki lágmarkskröfu um skólasókn samkvæmt skráningu í Innu.

Nemandi er skráður úr áfanga ef fjarvistir fara yfir hámark leyfilegra fjarvista. Nemandi fær senda tilkynningu þess efnis í tölvupósti þar sem fram kemur að hann hafi þrjá virka daga til að andmæla úrsögninni. Andmælum skal skilað skriflega með tölvupósti til aðstoðarskólameistara eða brautarstjóra.

Nýti nemandi sér andmælarétt skal hann mæta í alla tíma á meðan á andmælaferlinu stendur. Ef fullnægjandi skýringar liggja fyrir getur nemandinn fengið heimild til áframhaldandi setu í áfanganum með ströngum skilyrðum um mætingar til loka annar. Skólastjórnendur, í samráði við kennara og stoðteymi, taka endanlega ákvörðun um brottvikningu úr áfanga að teknu tilliti til aðstæðna og ástundar í áfanganum. Nemandi (og forráðafólk ef við á) fær niðurstöðu senda í tölvupósti.

Skólinn minnir nemendur og/eða forráðafólk þeirra á að fylgjast vel með í Innu en þar koma allar skráningar fram á skólasókn nemenda.

Sjá nánar í reglugerð nr. 326/2016 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í framhaldsskólum.