Viðhorf til tungumála
Við Menntaskólann á Akureyri (MA) stundar nám fjölbreyttur hópur með ólík móðurmál. Við lítum svo á að fjöltyngi sé fjársjóður og hvetjum til þess að þeirri kunnáttu sé haldið við og hún dýpkuð.
Málnotkun
Íslenska er fyrsta tungumál í MA, kennsla, námsmat og formleg samskipti fara fram á íslensku. Starfsfólk stoðþjónustu og íslenskubrúar kemur til móts við nemendur eftir bestu getu á sameiginlegu tungumáli ef ekki er hægt að tryggja að allar upplýsingar komist til skila á íslensku.
Sáttmáli um stefnu skólans
Nemendum er heimilt að styðjast við þýðingavélar á borð við google translate í samráði við kennara í kennslustundum en notkun slíkra forrita er bönnuð í prófum. Í prófum er nemendum heimilt að styðjast við orðalista sem þeir hafa sjálfir útbúið og kennari hefur samþykkt.
Kennara er heimilt að einfalda orðalag prófa og verkefna fyrir nemendur ef þurfa þykir, og leggja sig fram við að umorða og útskýra spurningar sem nemendur skilja illa. Eftir því sem við á geta kennarar útskýrt með dæmum en það skal ekki gert ef það ljóstrar upp lausn spurninganna.
Málnotkun nemenda sem hafa annað móðurmál en íslensku er metin á því stigi sem þeir eru staddir.
Kennurum er heimilt að taka nemendur í munnlegt próf ef þeir meta aðstæður þannig að það skili nemandanum betri árangri en skriflegt próf.