- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Menntaskólanum á Akureyri var slitið í 145. sinn í dag 17. júní við hátíðlega athöfn í Íþróttahöllinni.
Alls voru 184 stúdentar brautskráðir.
Dúx skólans er Árni Stefán Friðriksson sem brautskráðist af raungreina- og tækniibraut með meðaleinkunnina 9,52. Þórey Steingrímsdóttir var semidúx með meðaleinkunnina 9,35. Bæði fengu þau fjölda verðlauna og viðurkenninga. Skólinn óskar þeim innilega til hamingju með árangurinn. Það er gaman að segja frá því að þau eru gömul bekkjarsystkini úr Dalvíkurskóla.
Árni Stefán var í Gettu betur liði MA sem komst í úrslit í vetur. Hvatningarverðlaun MA fékk liðsfélagi hans úr Gettu betur, Sólveig Erla, en þau verðlaun eru ætluð nemanda sem hefur jákvætt viðhorf til náms, skólans og nemenda og hefur jákvæð áhrif á samfélagið í kringum sig. Betur verður gerð grein fyrir verðlaunum og viðurkenningum síðar.
Hæst í 1. bekk var Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir 1F með 9,9
Hæstur í 2. bekk var Elvar Björn Ólafsson 2Z með 9,6
Hæst í 3. bekk var Þórey Steingrímsdóttir 3G með 9,8
Öll tónlist var flutt af nýstúdentum; Amanda Eir Steinþórsdóttir, Elías Dýrfjörð, Helga Björg Kjartansdóttir og Lilja Gull Ólafsdóttir fluttu brot úr Eine kleine Nachtmusik eftir Mozart og Inga Rós Suska Hauksdóttir og Sóley Sif Jónsdóttir fluttu Stingum af eftir Mugison. Í lok athafnar var skólasöngurinn sunginn við undirleik Sóleyjar Sifjar. Forsöngvarar voru þær Inga Rós Suska Hauksdóttir og Kolfinna Ósk Andradóttir.
Sigríður Steinbjörnsdóttir íslenskukennari lætur af störfum eftir 37 ára farsæla kennslu við skólann og var sérstaklega kvödd við athöfnina og fékk hún gullugluna, heiðursmerki skólans.
Samantekt á ræðu skólameistara má sjá hér.
Það er löng hefð fyrir því að fulltrúar afmælisárganga komi að brautskráningu og styrkja flest Uglusjóð, hollvinasjóð MA. 50 ára stúdentar færðu skólanum glæsilegt listaverk, uglu eftir listakonuna Aðalheiði Eysteinsdóttur. 60 ára stúdentar gáfu upptökur af söng kvartetts úr árganginum.
Fulltrúi 70 ára stúdenta var Hjörleifur Guttormsson
Fulltrúi 60 ára stúdenta var Jóhannes Vigfússon
Fulltrúi 50 ára stúdenta var Valgerður Gunnarsdóttir
Fulltrúi 40 ára stúdenta var Logi Már Einarsson
Fulltrúi 25 ára stúdenta var Elín Björk Jónasdóttir
Fulltrúi 10 ára stúdenta var Aðalsteinn Jónsson
Bjartmar Svanlaugsson flutti ávarp fyrir hönd nýstúdenta, hann var forseti skólafélagsins Hugins sem stýrði félagslífi nemenda í vetur.
Að lokinni athöfn var haldið í MA þar sem myndir af árganginum og einstökum bekkjum voru teknar.
Og framundan er svo rúmlega 1000 manna veisla í kvöld, nýstúdentanna, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans í Íþróttahöllinni og hefur stúdentasveislan sjaldan verið fjölmennari. Þar verður fjöldi skemmtiatriða sem nýstúdentar sjá um. Þau marsera svo að venju um miðbæinn um kl. 23 í kvöld og dansa og syngja á Ráðhústorginu.