1. bekkur H sýnir sitt atriði
1. bekkur H sýnir sitt atriði

Í ár hefja 223 nýnemar nám við MA. Bekkirnir eru alls níu, fjórir á félagsgreinabraut, fjórir á náttúrufræðibrautum og síðan eru nokkrir nemendur á íslenskubrú. Það eru heilmikil viðbrigði að fara úr grunnskóla í framhaldsskóla, ekki síst fyrir nemendur sem koma annars staðar frá og búa á heimavist. Sumir koma úr fámennum skólum en fara hér í 26-28 manna bekk. Það er margt að taka inn fyrstu dagana, læra að rata um skólann, setja sig inn í ný kerfi, INNU, Canvas, office, kynnast bekkjarfélögum og kennurum og svo er auðvitað nýtt námsefni og jafnvel aðrar námskröfur. Þetta hefur því verið annasöm vika hjá nýnemum.

Eitt af því sem þau þurftu að læra þessa fyrstu daga er svokallaður nýnemadans. Nýnemamóttaka er í höndum skólafélagsins Hugins. Eftir skóla á fimmtudag og föstudag í síðustu viku voru leikir og þrautir á stöðvum í skólanum og víðsvegar um bæinn. Móttökunni lauk svo í gærkvöldi á nýnemaballi og danskeppni. Hver bekkur sýnir þar dans sem þriðjubekkingar hafa samið og er óhætt að segja að hæfileikarnir eru miklir, bæði í hópi danshöfunda og dansara. Keppnin var að vanda hörð og skemmtileg og var það 1H sem bar sigur úr býtum.