Hópurinn sem gerði myndina „Die vergessene Seele”
Þessi hópur hreppti þriðja sætið í stuttmyndakeppni Félags þýzkukennara árið 2026 fyrir myndina sína „Die vergessene Seele”. Þau voru saman í þýskuáfanga á haustönn (ÞÝSK2EE05) og ákváðu þar að gera mynd saman og taka þátt, enda komin með góða reynslu þar sem hluti hópsins átti sigurmyndina í keppninni í fyrra.
Á myndinni má sjá vinningshafana með verðlaunaskjalið sitt. Þetta eru þau Elias Guðjónsson Krysiak (3A), Emil Ragnar Reykjalín Ólafsson (2H), Hekla Himinbjörg Bragadóttir (3A), Hildur Helga Kolbeinsdóttir Bereng (3A), Marta Birna Eiríksdóttir (3A) og Tinna Dögg Garðarsdóttir (3A).
Við óskum þeim til hamingju með árangurinn!