Ari Brynjólfsson (1926–2013) var einn af merkustu og virtustu kjarneðlisfræðingum Íslands á alþjóðavettvangi. Áhugi hans á raungreinum kviknaði í Menntaskólanum á Akureyri (MA) þaðan sem hann varð stúdent árið 1948. Hann hélt þaðan til Kaupmannahafnar og nam eðlisfræði við Kaupmannahafnarháskóla og hina virtu Niels Bohr-stofnun. Hann átti glæsilegan feril á sviði kjarnorku- og geislunarfræða. Hann var brautryðjandi í rannsóknum á hagnýtingu geislunar, sérstaklega á sviði matvælageislunar (e. food irradiation) og þróun geislunartækja til að bæta matvælaöryggi og geymsluþol. Hann starfaði um árabil í Bandaríkjunum, meðal annars fyrir bandaríska herinn og alþjóðlegar stofnanir. Hann naut mikillar virðingar og eftir hann liggja fjölmörg vísindarit.

Fjölskylda Ara hefur haldið minningu hans á lofti, en synir hans og ekkja færðu MA minningargjöf til styrktar eðlisfræðikennslu. 

Aravaka er opin öllum áhugasömum. Nánari upplýsingar má finna á Akureyri.is og Facebook síðu viðburðarins. 

Dagskrá Aravöku – Minningarmálþings um Ara Brynjólfsson

Sunnudaginn 27. september 2026, Menntaskólanum á Akureyri

13.30 Fundarstjóri: Berglind Ásgeirsdóttir, fyrrverandi sendiherra, býður gesti velkomna.

Setningarávarp: Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

13.40 Ávarp: Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar.

13.45 Tónlist: „Lysting er sæt að söng“ eftir Snorra Sigfús Birgisson. Flytjendur eru Mahaut Ingiríður Matharel, sópran, og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, selló.

13.50 Dr. Sigurður Emil Pálsson, eðlisfræðingur og sérfræðingur í geislavörnum og umhverfisvernd: „Vísindastörf Ara Brynjólfssonar – gildi þeirra fyrr og nú.“

14.10 Ávarp: Valdís Björk Þorsteinsdóttir brautarstjóri, Menntaskólanum á Akureyri.

14.15 Tónlist: „MIAMOR“ eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur. Flytjandi: Eydís Úlfarsdóttir, víóla.

14.20 Ávarp: Dr. Brynjar Karlsson, forseti Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri.

14.25 Hlé

14.50 Prófessor Erik Brynjolfsson: „Frá Akureyri til Apollo og gervigreindar – öld framfara.“

15.20 Tónlist: „Ástin heldur að ég sofi“, eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur og „Amour pense que je dorme“ eftir Pierre Sandrin. Flytjendur: Eydís Úlfarsdóttir, víóla, og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, selló.

15.30 John Brynjolfsson: “Don’t Stop… Thinking About Tomorrow.”

15.40 Alan Brynjolfsson: „Bandaríski víkingurinn.“

15.50 Dr. Ragnheiður Guðmundsdóttir, fyrrverandi eðlisfræði- og stærðfræðikennari: „Fyrirmynd sem vísaði veginn – áhrifavaldurinn Ari Brynjólfsson.“

16.00 Lokaorð: Dr. Þórhallur Eyþórsson, prófessor við Háskóla Íslands.