Stjórn skólafélagsins Hugins hefur ákveðið í samráði við skólastjórnendur að fresta árshátíð skólans fram yfir áramót, í ljósi nýrra sóttvarnareglna. Þau stefna þó ótrauð að því að halda hana eins fljótt og auðið er.

Það er þó gleðilegt að nýjar sóttvarnarreglur munu ekki setja nám og kennslu í uppnám. Við höldum okkar striki, höfum borð í kennslustofum aðskilin, berum grímur þar sem skylda er og jafnvel oftar, þvoum hendur og sprittum, höldum  félagslífi innan skólans eins og hægt er og höfum gleði og bjartsýni að leiðarljósi.