- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Undirbúningur fyrir söngkeppni MA hefur staðið yfir síðustu vikur og óhætt er að segja að vel hafi tekist til. Kvosinni var breytt í tónleikahöll þar sem öllu var til tjaldað þegar keppnin fór fram nú í kvöld. Hvorki meira né minna en 18 atriði voru skráð til keppni. Húsbandið sá um undirleik, en það er skipað þeim Emil Andra, Erni Heiðari, Ólafi Inga og Rósalind Gullýju. Kynnar voru þeir Freyr og Máni.
Vinsælasta atriðið var kosið af áhorfendum og fékk líflegur flutningur Bergrósar Ástu Guðmundsdóttur og Hafrúnar Lindu Guðmundsdóttur á norska smell þeirra Marcusar og Martinusar, Elektrisk, flest atkvæði. Dómnefndin, sem skipuð var leikurum úr leiksýningunni Birtíngi, tók sér bessaleyfi og veitti Elvar Birni Ólafssyni verðlaun fyrir 4. sætið fyrir flutning sinn á laginu Easier Said Than Done. Heiðdís Pála Áskelsdóttir tók lagið This is a Mans World og hreppti 3. sætið og Íris Alma Kristjánsdóttir varð í 2. sæti fyrir flutning sinn á laginu Einhver.
Bæring Nói Dagsson fagnaði ekki aðeins 17 ára afmæli sínu í kvöld, því hann er sigurvegari söngkeppninnar 2026. Hann flutti lagið Teenage Dirtbag við skemmtilegan íslenskan texta sem hann samdi ásamt vinum sínum. Bæring mun keppa fyrir hönd skólans í Söngkeppni framhaldsskólanna með vorinu.
Við óskum ykkur öllum, sem komu að keppninni á einn eða annan hátt, innilega til hamingju með glæsilegt kvöld. Stórkostlegir hæfileikar, líkt og dómnefndin komst að orði!