Jarðskjálftar síðustu 48 klst. 22. feb. 2018
Jarðskjálftar síðustu 48 klst. 22. feb. 2018

Enn gildir óvissustig hjá almannavörnum vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi. En hvernig á maður að hegða sér í jarðskjálfta?

Á vef Almannavarna er að finna eftirfarandi leiðbeiningar sem gott er að kynna sér vel:

Ef þú ert innandyra þegar þegar jarðskjálfti byrjar– ekki hlaupa af stað.

• Haltu kyrru fyrir, mörg slys verða þegar hlaupið er af stað

• Farðu undir borð eða rúm og haltu þér í borð-  eða rúmfót

• Krjúptu niður í horni við burðarvegg eða í hurðaropi við burðarvegg

• Verðu höfuð þitt og andlit með kodda- ef þú vaknar upp við jarðskjálfta

• Haltu þig frá gluggum – þeir geta brotnað

• Láttu vita af þér með SMS þegar jarðskjálftnn hættir

Ef þú er utandyra þegar þú finnur jarðskjálfta – ekki hlaupa inn

• Vertu áfram úti

• Ekki vera nálægt háum byggingum sem geta hrunið eða háum trjám

• Grjóthrun, skriður og snjóflóð geta fallið úr hlíðum og fjalllendi

• Raflínur geta verið hættulegar – varist að snerta þær

• Reyndu að komast á opið svæði þar sem byggingar þrengja ekki að

Ef þú ert að keyra bíl þegar þú finnur jarðskjálfta:
• Legðu bílnum og stoppaðu. Vegir og brýr geta skemmst í jarðskjálfta

• Hafðu sætisbeltin spennt

• Haltu kyrru fyrir í bílnum þar sem hann getur varið þig gegn brotum og braki sem fer af  stað í jarðskjálfta – hlustaðu á útvarpið, þar koma jafnan fyrstu upplýsingarnar um jarðskjálftann.

Sjá nánar á vef Almannavarna.