Frá brautskráningu 2019
Frá brautskráningu 2019

Brautskráð verður að venju 17. júní frá Menntaskólanum á Akureyri. Athöfnin hefst kl. 10 í Íþróttahöllinni og verður streymt frá henni. Gert er ráð fyrir að hægt verði að skipta Höllinni upp í þrjú svæði og hver nemandi geti tekið með sér tvo gesti (en það fer að sjálfsögðu eftir því hvaða tilslakanir verða gerðar á samkomubanni).

Ekki verður haldin sameiginleg veisla nýstúdenta, fjölskyldna þeirra og starfsmanna um kvöldið í Höllinni líkt og hefur verið um ómuna tíð, eða allt að því. Hátíð jubilanta sem vera átti 16. júní hefur líka verið frestað til 18. júní 2021.

Stúdentsefnin ætluðu að dimittera 14. maí en því var aflýst vegna COVID. Þau stefna þó að því að kveðja kennara sína á einhvern hátt fyrir brautskráningu.