Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur ár hvert á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar
Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur ár hvert á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar

Í dag er dagur íslenskrar tungu. Jónas Hallgrímsson fæddist á þessum degi árið 1807 og Jón Sveinsson, Nonni, hálfri öld síðar. Þann 16. nóvember ár hvert, beinum við athyglinni að tungumálinu, gildi þess og mikilvægi í gegnum söng, upplestur og ýmis konar verkefnavinnu. Íslenskukennarar hafa hvatt starfsfólk og nemendur til að gera sér glaðan dag í dag, taka fyrir vel valin íslensk orð og ræða, spila íslenska tónlist eða annað í þeim dúr.

Rekja má upphaf dags íslenskrar tungu til ársins 1995 þegar þáverandi menntamálaráðherra kom með hugmyndina að deginum. Umræður og greinaskrif um stöðu tungumálsins eiga sér þó mun lengri sögu í MA. Í tilefni dagsins rifjum við upp grein sem Hjörtur Steinbergsson, nemandi í 6.V. skrifaði um íslenskt mál og birtist í skólablaðinu Muninn fyrir jólin 1980. Hjörtur útskrifaðist vorið 1981.

 

Mér datt Það í hug...


Einn er sá þáttur í mæltu máli, sem mér virðist vera að ryðja sér til rúms, og að mínu áliti til tjóns, en það er hin svonefnda "þágufallssýki". Ekki er nóg með að sýki þessi láti illa í mínum eyrum, heldur getur hún haft ýmislegt afar skringilegt í för með sér. Tökum dæmi:

Maður nokkur kom á bæ og hitti fyrir heimasætuna, sem stödd var úti á hlaði. Maðurinn spurði hana hvar pabbi hennar væri og fékk þetta makalausa svar: "Honum stendur hjá kaupakonunni úti á túni".

Eigi veit ég hvort saga þessi er sönn, en hún er skemmtilegt dæmi um hvað við getum átt á hættu með rangri notkun falla.

Sunnudaginn 1. mars 1981 hlustaði ég á erindi Höskuldar Þráinssonar um íslenskt mál, en erindið flutti hann í útvarpi. Þar ræddi hann meðal annars um tilhneigingu fólks til að nota þágufall í stað nefnifalls og þolfalls. Hann sagði að til yrði málleg stéttaskipting, þ.e.a.s. hinir ómenntuðu notuðu þágufall og segðu: "Mér vantar vinnu," en þeir sem kost hefðu átt á lengri skólagöngu ( menntaskóla eða jafnvel háskólanámi ) segðu, er svipað væri á komið: "Mig vantar vinnu".

Vera má að eitthvað sé til í þessu, en hægt er að finna mýmörg dæmi um hið gagnstæða. Og ekki treysti ég mér til að kveða upp þann dóm að það fólk sem fætt var á fyrsta fjórðungi þessarar aldar tali "verra" mál en við sem fædd erum eftir 1960, vegna þess að það hafi ekki átt kost á eins mikilli skólagöngu; öðru nær.

Við megum þakka okkar hámenntuðu spekingum fyrir hið svonefnda "stofnanamál", sem aðeins er á færi örfárra útvaldra að skilja. Frægt dæmi um þetta er þáttur sá í sjónvarpi nú í vetur, er Sigrún Stefánsdóttir spurði núverandi menntamálaráðherra, og tvo fyrirrennara hans um merkingu orða og orðasambanda úr þessu "ágæta" máli, og allir stóðu á gati, sem vonlegt var.

Vissulega geri ég mér grein fyrir þörf okkar á nýyrðum yfir ýmis, hugtök og tækninýjungar. En er ekki verið að gera einfalt mál flókið þegar talað er um að "framkvæma kveðjuferli" í stað þess að kveðjast?

Einnig vil ég víkja nokkrum orðum að skipan orða í setningum,- og nauðsyn þess að vanda til hennar. Ef slælega er að orðaröðun staðið, breytir setningin um merkingu, og sjaldnast til batnaðar. Hver þekkir ekki auglýsinguna: "Legubekkur til sölu hjá manni með snúnum fótum og bognu baki".

Atriði af þessu tagi eru allt of algeng í fyrirsögnum blaða svo og í auglýsingum, bæði í blöðum og útvarpi. Nú um jólahátíðirnar glumdi í eyrum útvarpshlustenda auglýsing frá íþróttafélaginu Þór á Akureyri, en verið var að auglýsa álfabrennnu á vegum félagsins. Vandlega var greint frá stað og stund brennunnar, en þegar kom að því að talin voru upp þau atriði, sem til skemmtunar skyldu vera, varð auglýsendum heldur betur á í messunni:

"Einnig koma fram jólasvéinar, tröll, púkar og fleiri Akureyringar".

Ljóðlistin er gott dæmi um fjölbreytni og fegurð móðurmáls okkar Íslendinga. Stuðlar, rím og margs konar bragarhættir, en af þeim er íslenskan mjög auðug, gefa málinu hljómmikinn blæ.

Íslenskt mál fellur mjög vel að lagi, vegna hinna reglubundnu áherslna, sem falla saman við taktbundnar áherslur tónlistar. Sumir setja íslensku við hlið ítölsku hvað fegurð og glæsileika í söng snertir.

Nú spyr ég þig: Eigum við að hætta á að tapa þessum kostum, og mörgum öðrum, vegna þeirra manna, sem ekki nenna að leggja á sig að læra íslenska málfræði og vanda daglegt mál sitt? Eigum við, meðan krafist er að við lærum enska, danska og jafnvel þýska málfræði, að láta íslensku málfræðina sitja á hakanum? Er ekki farið að skjóta skökku við er svo er komið, því vart verður það talinn ókostur að vera vel heima í íslensku málfræðinni, þegar læra á málfræði annarra þjóða?

Lausnina í dag telja margir vera að börn fái máltilfinningu, þau skynji hvort þau tala málfræðilega rétt eða rangt, án þess að vita hvaða reglur liggja til grundvallar. En hvernig geta blessuð börnin vitað hvort við, sem eldri erum, tölum rétt eða rangt mál?

Vöndum því daglegt mál okkar. Forðumst ambögur af því tagi sem ég hef rætt hér að framan. Þetta er ekki eins mikið vandamál og margir halda, og ég er þess fullviss að ef við byrjum strax í dag, öll með sameiginlegu átaki, þurfum við ekki að bera kvíðboga fyrir íslenskri tungu í framtíðinni.

Hjörtur Steinbergsson 6.V.

 

Heimild: Muninn 53. árgangur, 1. tbl.