Í vikunni var umfjöllun í Kastljósi á RUV um stöðu dönskunnar og dönskukennslu, ekki síst í kjölfar þáttaraðarinnar Danska konan sem sýnd var á RUV. Þar skammar aðalpersónan Íslendinga iðulega fyrir slælega kunnáttu í dönsku þrátt fyrir áralangt nám. Í MA er öflug dönskukennsla og tekið var viðtal við Kristínu Björnsdóttur Jensen dönskukennara og nemendurna Örnu Dögg Hjörvarsdóttur og Rebekku Sunnu Brynjarsdóttur sem eru í 3G. Einnig var litið inn í kennslustund hjá 2G. Hægt er að horfa á viðtalið hér

Á facebook síðu sinni sagði Kristín í kjölfar viðtalsins: ,,Ég get heldur ekki talað um dönskukennslu án þess að minnast á starfið mitt í MA. Ég er gríðarlega stolt af því sem við erum að gera þar. Við höfum verið að innleiða miklar breytingar og eftir áramót tókum við stórt skref í nýja átt sem ég er mjög ánægð með. Að vinna með samkennara sem tekur vel í hugmyndirnar mínar og deilir sömu ástríðu fyrir faginu er ómetanlegt, það er stór ástæða fyrir því að það er alltaf gaman að mæta í vinnuna á morgnana."

Kristín heldur líka úti vef, donskukennsla.com, þar sem hún deilir námsefni og verkefnum. Eins og hún segir sjálf þá hefur hún brennandi áhuga á kennslu og kennsluaðferðum.