Elvar Björn og Viltė ásamt rektor Háskóla Íslands, Silju Báru Ómarsdóttur. Kristinn Ingvarsson tók m…
Elvar Björn og Viltė ásamt rektor Háskóla Íslands, Silju Báru Ómarsdóttur. Kristinn Ingvarsson tók myndina.

Tveir fyrrverandi MA-ingar hlutu styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ. Alls fengu 29 nemendur, sem stóðu sig framúrskarandi vel í námi til stúdentsprófs og hófu grunnnám í Háskóla Íslands nú í haust, styrk úr sjóðnum. Sjóðurinn styður afreksnema til háskólanáms en við mat á styrkþegum er þó ekki einungis horft til árangurs þeirra á stúdentsprófi heldur einnig annarra þátta eins og virkni í félagsstörfum í framhaldsskóla og árangurs á öðrum sviðum, til dæmis í listum eða íþróttum. 

MA-ingarnir sem fengu styrk eru þau Elvar Björn Ólafsson og Viltė Petkutė. Á hi.is segir þetta um styrkhafana:

Elvar Björn Ólafsson brautskráðist frá Menntaskólanum á Akureyri í vor með afar glæsilegum árangri. Hann var mjög virkur í félagsstarfi skólans og sat í fjölmörgum nefndum ásamt því að taka virkan þátt í leikfélagi skólans. Hann hefur enn fremur náð frábærum árangri í forritunarkeppni framhaldsskólanna og auk þess látið að sér kveða í bæjarpólitíkinni á Akureyri. Elvar hefur innritast í nám í hagnýtri stærðfræði.

Viltė Petkutė útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri í vor. Óhætt er að segja að hún hafi verið virk í félagslífi skólans, í leiklist, dansi, kór og kvikmyndagerð, og þá var hún formaður nemendafélagsins Hugins á síðasta ári sínu í skólanum. Viltė hefur hafið nám í hjúkrunarfræði.

MA sendir þeim Elvari Birni og Viltė innilegar hamingjuóskir og óskar þeim velfarnaðar í námi sínu og lífi.