Nemendur syngja á Langa gangi
Laugardaginn 13. október verður kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema í Menntaskólanum á Akureyri. Kynningin verður á Hólum og hefst í Kvosinni, sal skólans, klukkan 14.00
- Sviðsstjórar kynna námið og námsfyrirkomulagið í skólanum
- Kennarar fjalla um tölvunotkun og nám
- Nemendur kynna félagslífið og skólabraginn
- Námsráðgjafar kynna þjónustu við nemendur
- Umsjónarkennarar sitja fyrir svörum, hver í sínum bekk
- Haldinn verður aðalfundur FORMA, Foreldrafélags MA
Boðið verður upp á veitingar og skemmtiatriði og sýndar myndir úr skólalífinu
Foreldrar og forráðamenn allra nýnema í MA eru hvattir til að koma og kynna sér skólastarfið
Skólameistari