Sól og sæla Cádiz í Andalúsíu
Sól og sæla Cádiz í Andalúsíu

Í upphafi skólaárs var farið að huga að undirbúningi Erasmus+ samstarfsverkefnis með IES María Galiana skólanum í Sevilla á Spáni. Þema verkefnisins var tengt hlýnun jarðar, umhverfismálum og sjálfbærni. Nemendur Menntaskólans voru á faraldsfæti 14. – 21. febrúar og nokkrum vikum seinna, 17. – 24. mars kom spænski hópurinn til Akureyrar.

Þann 14. febrúar fóru tveir kennarar með átta nemendur frá Akureyri til Gatwick þar sem gist var í eina nótt áður en haldið var til Sevilla. Þegar ferðalangarnir lentu á spænskri grund beið þeirra fjölmennur hópur foreldra, nemenda og kennara sem tók hlýlega á móti þeim. Næstu daga héldu hinir gestrisnu Spánverjar vel utan um hópinn. Nemendur gistu hjá gestafjölskyldum, tóku þátt í kennslustundum fyrri hluta dags og seinni partinn var dagskrá sem miðaði að því að kynna nærumhverfið fyrir nemendum og kennurum.

Áður en haldið var af stað undirbjuggu MA nemendur kynningar á ensku sem þeir fluttu fyrir spænska hópinn í húsakynnum spænska skólans. Í þeim var meðal annars fjallað um afleiðingar hlýnunar jarðar á Ísland og hvernig Íslendingar huga að umhverfismálum og sjálfbærni. Nemendur kynntu einnig Ísland, Eyjafjarðarsvæðið og heimabæinn fyrir gestgjöfum og sögðu að sjálfsögðu frá lífi og námi í Menntaskólanum á Akureyri. Spænsku gestgjafarnir kynntu spænska menningu fyrir íslenskum gestum með flamengo dönsum og tróðu meira að segja upp með þekktu spænsku lagi um Akureyri sem enginn Íslendingur í hópnum hafði nokkru sinni heyrt áður!

Á sólríkum degi var farið um svæði í jaðri byggðarinnar þar sem grasrótarhópur hefur sett á laggirnar sjálfbæra ræktun og getur þar boðið atvinnulausu fólki vinnu, starfrækt verslun með lífrænt ræktaðar vörur og selt veitingar sem útbúnar eru á staðnum. Þar að auki fékk hópurinn einn dásamlegan stranddag í miðaldarbænum Cádiz þar sem nemendur ýmist syntu í sjónum, böðuðu sig í sólinni eða gæddu sér á ís.  

Þegar spænski hópurinn kom til Akureyrar fékk MA hópurinn tækifæri til að endurgjalda gestrisnina. Nemendur opnuðu heimili sín fyrir gestunum, kynntu skólastarf og félagslíf fyrir þeim og skipulögðu dagskrá utan skólatíma, t.d. hópferð á LMA sýningu skólans Ljóska í gegn, sameiginlegar samverustundir í heimahúsum og bíltúra til að sjá norðurljósin! Farin var dagsferð í Mývatnssveit þar sem hópurinn fékk góða fræðslu á gestastofunni Gíg áður en einstakar náttúruperlur sveitarinnar voru skoðaðar. Flekamót, hraunmyndanir og jarðhitasvæði vöktu aðdáun gestanna eins og við mátti búast. Áður en hópurinn hélt aftur heim var farið í skemmtilegan ratleik um Akureyrarbæ sem snerist um umhverfismál.

Erasmus+ verkefni gefa nemendum einstakt tækifæri til að kynnast nýrri menningu. Sú reynsla sem hlýst af því að taka þátt í daglegu lífi í erlendu landi reynir meðal annars á sjálfstæði, tungumálakunnáttu og aðlögunarhæfni. Þau tengsl sem myndast í ferðum sem þessum koma ekki síst í ljós á tilfinninganæmum kveðjustundum og þá má glöggt sjá hversu mikilvægt er að veita nemendum tækifæri til þátttöku í alþjóðlegu samstarfi og kynnast nýju fólki.