Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir og stofnandi Streituskólans hélt í vikunni erindi fyrir starfsfólk um áhrif streitu á líðan og heilsu. Meginefnið var 1) Hvað er þreyta, streita, kulnun og örmögnun 2) Áhrif þreytu og streitu á samskipti, heilsu og hamingju og 3) Geðheilsan í fyrsta sæti. Forvarnir og efling.
Þetta var sérlega áhugaverður og gagnlegur fyrirlestur, en líka skemmtilegur. Það kom fram að streitutengdir sjúkdómar eru algengir og valda miklum kostnaði. Það er hins vegar mögulegt að draga úr þeim með ýmsum forvörnum og fjárhagslega hagkvæmt fyrir samfélagið að gera það.
Ólafur Þór er MA-ingur og nefndi hversu mikil áhrif kennarar geta haft á nemendur sína og m.a. starfsval. Fjölmargir bekkjarfélagar hans hefðu einmitt farið í læknisfræði vegna kennara eins og Sigurðar Bjarklind og Þóris Haraldssonar, sem höfðu brennandi áhuga á læknisfræðilegum þáttum og líffræði mannsins.