- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Í gær tóku fimm fyrrverandi nemendur úr Menntaskólanum á Akureyri við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og/eða íþróttum.
MA-styrkþegarnir eru:
Helga Viðarsdóttir
Inga Rakel Aradóttir
Magnús Máni Sigurgeirsson
Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir (Óðinn Andrason tók við styrknum fyrir hennar hönd)
María Björk Friðriksdóttir
Nánari upplýsingar um verðlaunin og verðlaunahafana eru á vef Háskóla Íslands
https://www.hi.is/frettir/rumlega_30_afreksnemar_fa_styrk_til_nams_i_haskola_islands
Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með styrkinn og velfarnaðar í námi við HÍ.