Ólík veðrabrigði má finna í plötum októbermánaðar í Gamla skóla
Ólík veðrabrigði má finna í plötum októbermánaðar í Gamla skóla

Veðrabrigði eru af ýmsum toga í október og því við hæfi að plötupakki mánaðarins sé það einnig. Við tökum haustlægðirnar á brjóstið með fjölbreyttum vínylplötum októbermánaðar. Plötur í gulum og rauðum litum eins og laufin. Haust í heitum litum. Við reynum að grafa upp bleikar plötur til að auka enn frekar á fjölbreytileikann. Allt í boði plötusafns skólans. Margs konar tónlistarstefnur munu hljóma í október og hita okkur upp fyrir veturinn svo sem jazz, popp og klassísk tónlist. Ópera Verdis, Il trovatore, tónlist úr söngleiknum My Fair Lady, píanótónlist Chopin, djass- og swingtónlist Billie Holiday og rótarrok Dire Straits eru aðeins örfá dæmi um tónlistarsnillinga sem munu gleðja gesti og gangandi í Gamla skóla næstu vikurnar. Fögnum flórunni og setjum fjölbreytta tónlist á fóninn.