Kæru íbúar á Akureyri og í nærsveitum,
Frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, langar að bjóða ykkur til samtals í tilefni þess að núna í október eru 40 ár síðan leiðtogafundurinn í Höfða var haldinn. Hún vill setja samtal og frið á dagskrá aftur og horfa með ykkur fram á veginn. Þetta samtal mun eiga sér stað í framhaldsskólum um allt land laugardaginn 10. október. Menntaskólinn á Akureyri og Verkmenntaskólinn á Akureyri munu styðja við nemendafélög skólanna svo slíkt samtal geti átt sér stað á Akureyri. Framhaldsskólarnir eiga að vera vettvangur samtalsins og nemendur sjá um að lóðsa samtalið þar sem yngra og eldra fólki er boðið að taka þátt og skapa þannig raunverulegt samtal á milli kynslóða. Hugmyndirnar og sjónarmiðin sem koma fram í samtalinu verða dregin saman og þeim deilt með allri þjóðinni.
Stjórnir Hugins og Þórdunu ásamt fleiri nemendum munum taka á móti ykkur í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri kl. 13:30 á laugardaginn. Frekari upplýsingar og skráning fer fram á vefsíðunni www.talasaman.is og þar eru einnig frekari upplýsingar. Við hlökkum til að hitta ykkur í MA þann 10. október næstkomandi.