Eins og kunnugt er hefur Ríkislögreglustjóri lýst yfir hættustigi á landinu vegna veirunnar COVID-19. Það er gert í samráði við sóttvarnarlækni og embætti landlæknis. Vegna þessa var kafla um leiðbeiningar fyrir skóla um varnir gegn sýklum hraðað og má finna hér. Frekari upplýsingar og leiðbeiningar útbreiðslu COVID-19 sýkilsins er að finna á vefsíðu embættis landlæknis á https://www.landlaeknir.is/

Nemendur og starfsmenn Menntaskólans á Akureyri eru hvattir til að kynna sér rækilega upplýsingarnar og fylgja ábendingum um varnir gegn smiti og grípa til aðgerða ef grunur um smit vaknar.

Mikilvægasta forvörnin er handþvottur. Einnig hefur handspritti verið komið upp víðsvegar um skólann. 

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra bað skólastjórnendur um að koma eftirfarandi skilaboðum til nemenda og foreldra þeirra. Það bréf hefur verið sent nemendum, starfsfólki og forráðamönnum.