Frambjóðendur og fundarstjórar í Kvosinni
Frambjóðendur og fundarstjórar í Kvosinni

Frambjóðendur til sveitarstjórnarkosninga í vor heimsóttu skólann í gær og ræddu við nemendur. Átta flokkar bjóða fram á Akureyri. Öll framboð sendu fulltrúa á fundinn sem var stýrt af þeim Gunnari Óla Gunnarssyni og Möndu Ómarsdóttur. Frá vinstri: Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir frá V lista. Sindri S. Kristjánsson frá S lista. Elías Gunnar Þorbjörnsson frá C lista. Óðinn Svan Óðinsson frá L lista. Manda og Gunnar Óli fundarstjórar. Gunnar Már Gunnarsson frá B lista. Vilmundur Aðalsteinn Árnason fyrir A lista. Heimir Örn Árnason fyrir D lista. Hlynur Jóhannsson fyrir M lista.