Frönsku gestirnir ásamt enskukennurunum Ágústínu og Maiju og Friðriku kennara í frönsku.
Núna á dögunum fengum við góða heimsókn frá Sylva skólanum í Montélimar í Frakklandi. Þrír kennarar, þau Rachel, Brice & Gilles, komu sem hluti af Erasmus + verkefni sem gefur kennurum kost á að heimsækja skóla í öðrum löndum til að efla tengsl ásamt því að skoða kennsluhætti & skólastarf. Kennararnir eyddu fjórum dögum í að heimsækja kennslustundir í ólíkum fögum og kíkja á skóla- og félagsstarf í MA. Einnig tóku þau þátt í söngsal, fóru í sögugöngu um bæinn og kíktu á markverða staði á Norðurlandi. Heimsóknin hefur því verið áhugaverð og skemmtileg fyrir bæði gestina og gestgjafana. Móttöku gestanna var stýrt í samstarfi ensku- og frönskukennara skólans. Takk fyrir komuna Rachel, Brice og Gilles!
Ágústína Gunnarsdóttir