Nemendur 3. bekkjar í heimsókn hjá Drift EA
Nemendur 3. bekkjar í heimsókn hjá Drift EA

Nemendur skólans hafa kafað ofan í frumkvöðla- og nýsköpunarheiminn í gegnum frumkvöðlaverkefni og fjölbreyttar heimsóknir síðustu daga.

Frumkvöðlaverkefni í menningarlæsi

Nemendur í menningarlæsi í 1. bekk gerast frumkvöðlar í svokölluðu frumkvöðlaverkefni þar sem þeir finna upp á nýjum vörum eða þjónustu til að bjóða landsmönnum upp á. Verkefnið felur í sér að stofna fyrirtæki, hanna vefsíðu og vörumerki, búa til slagorð og kynningarmyndband.

Nemendur fengu að ráðfæra sig við reynt fólk úr atvinnulífinu og meta í því samtali hugmyndir sínar, kosti þeirra og galla. Meðal gestanna voru Kolfinna María Níelsdóttir hjá Eimi, Svava Björk Ólafsdóttir verkefnastjóri frumkvöðla og nýsköpunar hjá HA, Selma Dögg Sigurjónsdóttir skrifstofustjóri og Andri Már Þórhallsson forritari og frumkvöðull.

Fróðleg vika í náms- og starfsvali

Nemendur í 3. bekk í náms- og starfsvali nutu góðs af fjölbreyttum heimsóknum og gestum.

Hluti nemenda heimsótti Drift EA, miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar á Norðurlandi, þar sem Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir framkvæmdastjóri kynnti starfsemi Driftar og frumkvöðlastarfsemi á Norðurlandi. Í Drift EA voru "gamlir" MA nemendur, þeir Júlíus Þór Björnsson Waage, Friðrik Snær Björnsson og Fjölnir Unnarsson, sem allir vinna að nýsköpunarverkefnum sínum með stuðningi frá Drift EA.

Einnig kom starfsfólk frá Eimi í heimsókn í MA og ræddi við nemendur um nýsköpun og sjálfbærni. Þar á meðal voru Ottó Elíasson framkvæmdastjóri og Karen Kristjánsdóttir sviðsstjóri. Þuríður Helga Kristjánsdóttir, frumkvöðull og framkvæmdastjóri Veglyndis, heimsótti einnig skólann og ræddi við nemendur um störf og nám með sérstakri áherslu á mikilvægi sjálfsþekkingar, sköpunar og innsæis.