Karen Birna ver doktorsritgerð sína 14. október
Karen Birna ver doktorsritgerð sína 14. október

Þriðjudaginn 11. október kl. 13:00 mun Karen Birna Þorvaldsdóttir verja doktorsritgerð sína í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri. Doktorsritgerðin ber heitið Að skilja og mæla hindranir þess að leita sér hjálpar eftir áfall: Þróun á mælitæki með blönduðum aðferðum. Vörnin fer fram á ensku í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri og er öllum opin. Þetta er fyrsta doktorsvörnin við Háskólann á Akureyri. Karen Birna brautskráðist frá MA árið 2013 af félagsfræðibraut. Til hamingju Karen Birna.