Á söngsal
Á söngsal

Söngsalur er gömul hefð í Menntaskólanum, þótt hann hafi tekið breytingum í gegnum árin og lagavalið endurnýjast með hverjum árgangi. Fyrsti söngsalur skólaársins var sunginn í dag, skólameistara að óvörum, en tilefnið var m.a. að fagna afmæli hans. Venjulega endar söngsalur á því að nemendur standa á fætur og syngja skólasönginn en nú bættu þeir um betur og sungu líka í lokin afmælissönginn fyrir skólameistara auk þess sem honum var færður blómvöndur frá nemendum.