Menntabúðir eru haldnar reglulega í MA. Fyrstu menntabúðir vorannar eru í dag. Þar bjóða Valdís B. Þorsteinsdóttir, brautastjóri og stærðfræðikennari, og Þórhildur Örvarsdóttir, kennari á sviðslistabraut, upp á fræðslu. A.v. um hugbúnaðinn Desmos sem getur stutt við kennslu í stærðfræði, raungreinum og fleiri greinum og h.v. raddbeitingu, virkni raddarinnar og grunnatriði góðrar beitingar.