Gettu betur. Mynd: Skólafélagið Huginn.
Gettu betur. Mynd: Skólafélagið Huginn.

Lið MA er komið í 8 liða úrslit í Gettu betur í sjónvarpi eftir sigur á liði MÍ á Rás 2 í kvöld, en leiknum lauk með 34 stigum gegn 28.

Alls voru fjórar viðureignir í kvöld og liðin sem komust áfram auk Menntaskólans á Akureyri eru Menntaskólinn í Reykjavík, sem vann Borgarholtsskóla, Kvennaskólinn, sem vann Tækniskólann og Menntaskólinn á Egilsstöðum, sem vann Verkmenntaskóla Austurlands.

Seinni fjögur liðin í sjónvarpskeppnina verða kunn eftir seinni keppnisdaginn á Rás tvö, annað kvöld.