Einn af föstum viðburðum á síðustu kennsludögum vorannar er sparifatakaffi. Þá mæta verðandi stúdentsefni klædd í sitt fínasta púss og bjóða starfsfólki til veislu. Það er óhætt að segja að borðið hafi svignað undan veitingum og gaman að sitja uppi á Gamla sal og njóta veitinga og horfa yfir fjörðinn. Starfsfólk þakkar 3. bekkingum kærlega fyrir boðið.