FemMA
FemMA

Af og til eru gleðidagar í MA þar sem tekið er á móti nemendum að morgni með einhverju góðgæti. Yfirleitt er það stjórn skólafélagsins Hugins sem stendur að gleðidögum, en stundum eru þeir í höndum annarra félaga.

Í dag var gleðidagur og forystusveit FemMA, Feministafélags MA tók á móti nývöknuðum nemendum með kókómjólk, kleinum,. blöðrum og fleira dóti. Þessu var að vanda vel tekið og með þakklæti.