Menntaskólinn á Akureyri sendir nemendum sínum og starfsfólki óskir um gleðilega jólahátíð.

Vonandi njóta allir verðskuldaðs jólafrís að lokinni strembinni önn og finna jólagleði og jólafrið í hjörtum.

Skrifstofur skólans og skólahúsnæði verður lokað frá og með 21. desember til 4. janúar, en hægt að hafa samband við ma@ma.is.

 Með kveðjunni fylgja ljúfir jólatónar frá TóMA - hér.