Mynd: Kolbrún Ýrr Bjarnadóttir
Mynd: Kolbrún Ýrr Bjarnadóttir

Íslenski fáninn blakti við hún á Gamla skóla í dag, fullveldisdaginn. Til hamingju með daginn. 

Í gær héldu nemendur jólasöngsal, sungu jólalög og enduðu á því að ganga í kringum jólatréð.  Það styttist í lok annar, kennslu lýkur í næstu viku og þá taka við próf og ýmisskonar námsmat.