Nemendur deila reynslusögum á opnu húsi
Nemendur deila reynslusögum á opnu húsi

Á annað hundrað manns heimsótti skólann í gær á svokölluðu opnu húsi. Dagskráin hófst á nokkrum vel völdum orðum frá skólameistara. Í kjölfarið ræddu brautarstjórar við gesti auk þess sem formaður kynningarnefndar skólans kynnti nemendur til leiks sem deildu reynslusögum af fyrsta ári í MA. Námsráðgjafar og verkefnastjóri íslenskubrúar ræddu við gesti og gangandi. Fleira var í boði svo sem tónlistaratriði í flutningi nemanda, kynningarmyndband, ratleikur og skoðunarferð um skólann. Þá var boðið upp á léttar veitingar.