Karl Frímannsson skólameistari setur skólann
Karl Frímannsson skólameistari setur skólann

Hver krókur og kimi í Kvos Menntaskólans á Akureyri var nýttur þegar fjöldi fólks var viðstaddur setningu skólans í 147. sinn í morgun. Fjöldi gesta skýrist að einhverju leyti af fjölda nýnema og heildarfjölda nemenda á komandi skólaári. Nemendur sem hefja nám í 1. bekk eru 225 talsins en alls munu 610 nemendur hefja leik í MA þetta árið. Skólameistari Karl Frímannsson bauð gesti velkomna og eftir nokkur vel valin orð kynnti hann hljómsveitina Dynjandi til leiks. Hún flutti lagið Dag sem dimma nátt, lag Magnúsar Þórs Sigmundssonar við texta Stefáns Hilmarssonar, sem hljómsveitin Í svörtum fötum gerði frægt um árið. Hljómsveitina Dynjandi skipa þau Bæring Nói Dagsson, Emil Andri Davíðsson, Írena Rut Jónsdóttir, Íris Ísafold Sigurbjartsdóttir, Manúel Axel Þorgeirsson, Ólafur Ingi Kjartansson, Tinna Hjaltadóttir og Örn Heiðar Lárusson. Hljómsveitarmeðlimir stigu aftur á stokk við lok athafnar og fluttu gamla Sálarsmellinn Ábyggilega, lag Guðmundar Jónssonar við texta Stefáns Hilmarssonar.

Að loknum lifandi flutningi Dynjanda á lagi Jónsa og félaga Í svörtum fötum, tók Karl aftur til máls. Hann ræddi um mikla aðsókn að skólanum og sagði hana vera vitnisburð um að starfið í MA hefði gott orð á sér þar sem helstu leikendur væru nemendur og kennarar. „Drifkraftur okkar er að sjá ykkur vaxa og þroskast“ sagði skólameistari enn fremur og minnti á einkunnarorð skólans virðing, víðsýni og árangur.

Karl sagði frá breytingum sem orðið hafa á mætingarreglum skólans í kjölfar breyttra áherslna í skólastarfi. „Okkur þótti ástæða til að bæði einfalda reglurnar en ekki síður að breyta þeim í takti við þá stefnu okkar að vilja auka ábyrgð nemenda á náminu sem og að auka sveigjanleikann í námi.“

Því næst kom Karl inn á notkun gervigreindar við nám og kennslu. Hann sagði hraða þróun í þeim efnum hafa skapað áskoranir í skólakerfinu. Sjálfur sagðist hann vera hvatamaður þess að nýta gervigreindina til aðstoðar við hin og þessi úrlausnarefni og til þess að einfalda fyrir okkur hin ýmsu störf. „Þar undir fellur hins vegar EKKI að láta gervigreindina vinna fyrir sig verkefni sem kennarar gera kröfu um að nemendur vinni sjálfir.“ Karl sagði verkefni sem unnin væru af gervigreind, ekki uppfylla námskröfur því „staðreyndin er sú að gervigreindin lærir ekki fyrir okkur.“ Og áfram hélt Karl að vekja nemendur og aðra gesti til umhugsunar um gervigreindina. Hún gæti verið góður námsfélagi sem leita mætti til en að nám færi ekki fram ef við létum hana vinna verkefnin fyrir okkur. Menntun væri það sem sæti eftir þegar búið væri að loka bókum og slökkva á tölvum og símum. „Samt er það hvatning mín að þið notið gervigreind til að hjálpa ykkur að læra og menntast því menntun á að auka hæfni okkar til að verða nýtir samfélagsþegnar og gera heiminum gagn.“

Karl varaði við þröngsýni og loforðum um skyndilausnir í námi og hvatti til staðfestu. „Ég vil að um hann [skólann] leiki vindar frá samfélaginu, frá heimsþorpinu. Ég hafna því hins vegar að láta feykja okkur um koll vegna undanlátssemi við samfélagsumræðu eða kröfu um að allt eigi að vera létt og auðvelt. Við þurfum að standa fast á okkar rót, við þurfum að reyna á okkur til að öðlast vandaða menntun, við þurfum að muna, skilja, geta tjáð okkur í ræðu og riti, tekið sjálfstæðar ákvarðanir og fylgt okkar sannfæringu. Látum fólk eins og Rósu Parks, Móður Teresu, Mahatma Gandhi eða Nelson Mandela blása okkur byr í brjóst. Öll stóðu þau fast á eigin sannfæringu og unnu bug á óréttlæti með staðfestu.“ Þá minnti Karl á skólareglur sem snúa að vímuefna- og símanotkun áður en hann flutti lokaorð sín.

„Hvatning mín til ykkar er sú að taka námið föstum tökum og takið jafnframt virkan þátt í félagslífinu. Menntun snýst ekki um að fylla fötu heldur að tendra eld. Ef eldurinn brennur fyrir því að gera allt framúrskarandi vel þá þarf ekkert að óttast. Við erum stolt af góðu skólastarfi, við erum stolt af því að vera með vímuefnalausan skóla og við erum stolt af öflugu félagslífi. Við sem störfum hér höfum óbilandi trú á ungu fólki og hlökkum til að starfa með ykkur í vetur. Gangi ykkur öllum sem best og ég segi Menntaskólann á Akureyri settan haustið 2026.“