Góðgerðavika Hugins stendur yfir dagana 8. - 12. mars
Góðgerðavika Hugins stendur yfir dagana 8. - 12. mars

Góðgerðavika Hugins stendur nú sem hæst. Á fésbókarsíðu skólafélagsins má sjá áheitin en óhætt er að segja að þar kenni ýmissa grasa. Hægt er að leggja átakinu lið með því að leggja inn á reikning kt: 470997-2229, rnr: 0162-26-002686 en einnig er hægt að borga í gegnum AUR í símanúmerinu 663 9358.

Ína Soffía Hólmgrímsdóttir forseti Hugins sagði í samtali við vefmiðilinn Kaffið í gær að safnast hefðu 115.000 krónur fyrsta daginn. Góð byrjun en betur má ef duga skal. Við hvetjum alla sem tök hafa á að sýna stuðning í verki.