Júlímánuður er sumarfrísmánuður í MA, þannig að skrifstofur skólans verða lokaðar þennan mánuð. Hægt er að koma skilaboðum til skólans ef þarf með því að senda póst á netfangið ma@ma.is. Greiðsluseðlar hafa verið sendir út til nýnema og eldri nemenda skólans og er eindagi 15. júlí.

Við sendum nemendum okkar sumarkveðjur og hlökkum til að hitta ykkur í ágúst.