Skjáskot af uppfærðri heimasíðu Hugins
Skjáskot af uppfærðri heimasíðu Hugins

Heimasíða skólafélags MA hefur fengið andlitslyftingu. Myndir fá nú að njóta sín í auknum mæli og tilkynningar og fréttir eru settar fram á aðgengilegan hátt. Á síðunni má m.a. finna upplýsingar um skólafélagið, matseðil vikunnar og fréttir úr skólalífinu svo eitthvað sé nefnt. Heimasíðan er enn í vinnslu og ekki að öllu leyti frá henni gengið þegar þessi orð eru rituð. Slóðin á heimasíðu Hugins er huginnma.is.