Forsetahjónin og Huginsstjórn
Forsetahjónin og Huginsstjórn

Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, heimsóttu MA í dag en þau eru á ferð um Akureyri. Huginsstjórn, stjórnendur og starfsfólk skólans tóku á móti forsetahjónunum og fóru með þeim um skólann.

Í heimsókninni vöktu meðal annars athygli þeirra skólaspjöld á veggjum Gamla skóla, háaloftið og gamla heimavistin auk hvalbeinsins á skrifstofu skólameistara. Skólameistari veitti forseta gullugluna, heiðursmerki skólans.

Að því loknu ræddi forsetinn við nemendur í Kvosinni um samskiptamiðla, líðan ungs fólks og gervigreind, svo eitthvað sé nefnt. Elvar Björn Ólafsson í 3.X stýrði umræðunni af kostgæfni og fengu nemendur tækifæri til að bera fram spurningar. Meðal þess sem brann á nemendum var kílómetragjaldið, forsetaembættið sjálft og notkun þess á samskiptamiðlum.

Heimsóknin vakti greinilega mikla lukku meðal nemenda og komu margir að máli við forsetahjónin í lokin. Þau gáfu sér góðan tíma til að ræða við unga fólkið og tóku með þeim myndir.

Við þökkum forsetahjónunum kærlega fyrir komuna í MA. Fleiri myndir frá heimsókninni má finna á samskiptamiðlum skólans.