Helgi Valur, Jóhann Gunnar og Kristján Geir
Helgi Valur, Jóhann Gunnar og Kristján Geir

Forkeppni stærðfræðikeppni framhaldsskólanema fór fram 4. október 2022. Í gær var tilkynnt við athöfn í Háskólanum í Reykjavík hvaða nemendur komast áfram í lokakeppnina sem fer fram í mars 2023. Þrír nemendur í MA munu taka þátt í þeirri keppni, þeir Helgi Valur Björnsson 1T,  Jóhann Gunnar Finnsson 3X og Kristján G. Hirlekar 1V. Einnig komust tveir nemendur úr VMA áfram þannig að árangurinn norðan heiða var býsna góður. 

Við óskum Helga, Jóhanni Gunnari og Kristjáni Geir til hamingju með árangurinn.