Jóhann S. Björnsson, kennari í eðlisfræði, sýnir hvernig hægt er að láta vatn ná suðumarki en vera samt ískalt!
Kennarar í raungreinum, sem gjarnan eru kallaðir Möðruvellingar eftir raungreinahúsi skólans Möðruvöllum, héldu fjölskyldudag í dag. Viðburðurinn fékk heitið Hölludagur til heiðurs forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, sem á afmæli í dag. Þau buðu samstarfsfólki sínu og fjölskyldum þeirra í heimsókn á Möðruvelli þar sem hægt var að skoða og taka þátt í ýmsu skemmtilegu sem tengist þeim raungreinum sem kenndar eru í MA. Það voru tilraunir í efnafræði og eðlisfræði, sem sumum viðstöddum fannst vera eins og galdrar, smásjár og sjónauki, uppstoppuð dýr og líffæri úr dýrum og steinasafn. Það var hægt að nýta bragðskynið til að greina mismunandi sætustig, finna leiðni á eigin skinni og allskonar skemmtilegt. Það var vel mætt og yngsta kynslóðin var afar áhugasöm.
Við þökkum Möðruvellingum innilega fyrir skemmtilegt heimboð.