Hver var eigandi glósubókarinnar dularfullu?
Hver var eigandi glósubókarinnar dularfullu?

Gömul glósubók í ensku fannst á dögunum á lofti Gamla skóla. Þar lúrði hún innan um fornar bækur í hillu á gömlu heimavistunum. Bókin er stútfull af lituðum teikningum og bera vott um mikinn metnað eigandans til að gæða glósurnar lífi. Hún geymir glósur úr hinum ýmsu sögum svo sem „The Crow and the Pitcher“, „Robin Hood“ og „The Siege of Calais“. Aldur bókarinnar liggur ekki fyrir en líklega hefur hún verið í eigu nemanda skólans einhvern tímann um miðja 20. öld. Já, þetta kallar maður vinnubrögð í lagi. Í raun er hér á ferðinni annað og meira en bara glósubók, svona nokkurs konar listaverkabók. En hver ætli sé höfundur listaverkanna? Við vitum það ekki þar sem bókin er ómerkt auk þess sem hún geymir engar vísbendingar um eigandann aðrar en teikningarnar og skriftina. Fleiri myndir af þessari listrænu bók má nálgast á fésbókarsíðu skólans.