- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Innritun í framhaldsskóla landsins er nú lokið og umsækjendur geta séð stöðu umsókna sinna á island.is.
Aðsókn var mjög góð í MA. Alls sóttu 240 nýnemar á fyrsta ári um skólavist með MA sem fyrsta kost, auk eldri nemenda. Teknir voru inn 216 nýnemar í fyrsta bekk, auk nokkurra eldri og 13 nemendur á íslenskubrú sem ýmist eru á fyrsta eða öðru ári. Alls hefja því um 235 nýir nemendur nám við skólann á haustönn. Mjög fjölmennur árgangur lauk námi nú í vor og voru 184 stúdentar brautskráðir. Nemendafjöldi verður þó svipaður í vetur þar sem svo margir nýnemar voru teknir inn.
Skrifstofa skólans er lokuð frá 23. júní til 5. ágúst. Erindum til skólans utan opnunartíma skrifstofu er best að beina á netfang skólans, ma@ma.is.
Skólinn verður settur 18. ágúst kl. 09:30. Skóladagatal næsta skólaárs er aðgengilegt hér á ma.is Við biðjum forráðamenn að skipuleggja frí barna sinna þannig að það hafi sem minnst áhrif á mætingu þeirra í skólann.
Stundatöflur og bókalistar verður aðgengilegt á INNU stuttu fyrir skólabyrjun. Nýnemabréf með upplýsingum um innritunargjöld og fleira er á ma.is.
Starfsfólk skólans óskar nemendum skólans og forráðafólki þeirra gleðilegs sumars.