Frá nýnemamóttöku 2025
Frá nýnemamóttöku 2025

Innritun í framhaldsskóla landsins er nú lokið og umsækjendur geta séð stöðu umsókna sinna á Stafrænu Íslandi.

Aðsókn var mjög góð í MA. Alls sóttu 249 nýnemar á fyrsta ári um skólavist með MA sem fyrsta kost, auk eldri nemenda. Teknir voru inn 226 nýnemar og þar af nokkrir á íslenskubrú á 2. ári. Nemendafjöldi í skólanum verður svipaður næsta skólaár. Hvorki var hægt að innrita á kjörnámsbraut í sviðslistum né mála- og menningarbraut. Of fáar umsóknir bárust til að hægt væri að fara af stað með þær brautir vegna kröfu um aðhald í rekstri. Umsækjendur voru innritaðir á varabraut. Innritað var á fjóra bekki á náttúrufræðibrautum og fjóra á félagsgreinabraut, auk eins hóps á íslenskubrú. Umsækjendur sem sóttu um tvær náttúrufræðibrautir, t.d. heilbrigðisbraut sem aðalbraut og náttúrufræðibraut sem varabraut, geta lent í því að fá ekki inngöngu þrátt fyrir að uppfylla inntökuskilyrði þar sem bekkirnir eru orðnir fullir.

Bekkirnir eru mjög fjölmennir og ekki hægt að bæta við nemendum að sinni. Ef umsækjendur óska eftir að vera á biðlista er hægt að senda póst á ma@ma.is. Farið verður yfir biðlista í byrjun ágúst þegar ljóst er hvort allir umsækjendur hafa greitt staðfestingargjald. Greiðsluseðill kemur í heimabanka nemenda ef þeir hafa aðgang að slíku en annars í heimabanka forráðafólks.

Skrifstofa skólans er lokuð frá 24. júní til 4. ágúst. Erindum til skólans utan opnunartíma skrifstofu er best að beina á netfang skólans, ma@ma.is.

Skólinn verður settur 19. ágúst kl. 09:30. Skóladagatal næsta skólaárs er aðgengilegt hér. Við biðjum forráðafólk að skipuleggja frí barna sinna þannig að það hafi sem minnst áhrif á mætingu þeirra í skólann.

Stundatöflur og bókalistar verða aðgengileg á INNU stuttu fyrir skólabyrjun. Nýnemabréf með upplýsingum um innritunargjöld og fleira er á ma.is.

Starfsfólk skólans óskar nemendum skólans og forráðafólki þeirra gleðilegs sumars.